Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Norðurfjörður

Sæluhús FÍ í Norðurfirði nefnist Valgeirsstaðir og er gamalt íbúðarhús í góðu standi. Það stendur við botn Norðurfjarðar, rétt ofan við fallega sandfjöru.

Í húsinu er veiturafmagn og það er hitað upp með rafmagni. Húsið er tvær hæðir. Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi sem rúma frá einum og upp í fjóra gesti. Á neðri hæð eru fjögur herbergi sem taka frá þremur upp í sex gesti. Samtals tekur húsið 20 manns. Þar er einnig borðstofa og velbúið eldhús. Í eldhúsinu er heitt og kalt vatn, rafmagnseldavél með ofni, örbylgjuofn og allur borðbúnaður. Í húsinu er sturta og tvö salerni. Í 10 mínútna göngufæri frá húsinu er verslun og sundlaug er á Krossnesi, ekki ýkja langt í burtu.

Fjölmargar spennandi gönguleiðir um stórbrotið land eru í nágrenninu. Má þar nefna göngu á Töflu, Kálfatinda, Munaðarnesfjall og Krossnesfjall. Einnig eru hægt að fara í lengri gönguferðir, s.s. yfir í Ingólfsfjörð og kringum Strút. Ekki má gleyma töfraheimi fjörunnar. Þar er að sjá trölllasmíð eins og Tröllahlaða og Bergið. Einnig er þar Gvendarsæti sem Guðmundur góði biskup sat í er hann vígði Urðirnar í Norðurfirði. Sími frá 1. júlí til 31. ágúst er 862-3363.

 

Sjá myndir úr vinnuferð í Norðurfjörð sumarið 2007


 


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Skálar » Norðurfjörður

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd