Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Þverbrekknamúli

Skáli F.Í. í Þverbrekknamúla stendur í 550 m y.s.,gps. 64 43.100 19 36.860 SA undir Hrútfelli, nálægt Fúlukvísl. Hann er á miðri gönguleiðinni um Kjalveg hinn forna. Skálinn var byggður 1980 og  stækkaður og endurbyggður 1996.  Skálinn rúmar 20 manns í kojum. Húsið er á einni hæð, kynt með gasi og olíuvél. Þar er gaseldavél, eldhúsáhöld og borðbúnaður. Rétt við skálann er salernishús sem byggt var 2002.  Gott tjaldstæði er skammt frá húsinu.  Í skálanum er neyðartalstöð.  Sorphirða er ekki á staðnum. Kamar skammt frá skála fyrir vetrarumferð. 

Fyrsta brúin á Fúlukvísl var byggð 1981, sú brotnaði undir snjó á fyrsta vetri. Aftur var byggð brú 1985, 10 árum síðar sligaðist hún undan snjóþyngslum, en var endurbyggð sama ár.  Í miklu vetrarflóði árið 2004 hvarf sú brú í heilu lagi.  Sumarið 2005 var enn byggð ný brú. Hún er 18 metra löng og stendur 10 m yfir vatnsborði.  Hún mun vonandi þola átökin við á ána í nánustu framtíð.

fula1

Ný brú yfir Fúlukvísl var byggð í sumarið 2005 undir forystu Valdimars Valdimarssonar.  Brúin stendur í um 10 metra hæð, er 18 metra löng.

 

 


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Skálar » Þverbrekknamúli

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd