Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Um Ferðafélagið

Ferðafélag Íslands - Félag allra landsmanna

Ferðafélag Íslands var stofnað 27. nóvember 1927 og er því 82 ára. Félagið er áhugamannafélag og tilgangur þess er að stuðla að ferðalögum um Ísland og greiða fyrir þeim. Allir eru velkomnir í félagið og félagsmenn njóta umtalsverðra fríðinda í formi veglegrar árbókar ár hvert og verulegs afsláttar af gistingu í skálum  og fargjaldi í ferðum félagsins og deilda þess. Þar að auki veita fjölmörg fyrirtæki félagsmönnum afslátt af þjónustu sinni. Árgjaldið 2010 er 5.400 krónur.

Innan vébanda F.Í. starfa 10 deildir víða um landið. Þær eiga og reka skála og halda úti ferðum allan ársins hring.

Í Ferðafélagi Íslands eru um sjö þúsund félagsmenn. Auk ferða af ýmsum toga er margvíslegt félagslíf innan félagsins. Yfir vetrarmánuðina er efnt til myndakvölda, kvöldvaka, spilakvölda, þorrablóta og margs fleira. Allir slíkir viðburðir eru kynntir með góðum fyrirvara hér á heimasíðu félagsins.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Um FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd