Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Á döfinni

Árbók FÍ 2010 - Friðland að Fjallabaki

                              

Árbók Ferðafélags Íslands fjallar að þessu sinni um Friðland að Fjallabaki en þar eru Landmannalaugar og nágrenni í öndvegi. Höfundur bókarinnar er Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ.   

 

Ferðafélag barnanna - nýstofnað félag innan FÍ

Vifilsfell-125Ferðafélag Íslands hefur stofnað Ferðafélag barnanna sem hefur það að markmiði að hvetja börn og foreldra til útiveru og náttúruupplifunar.  Ný heimasíðu Ferðafélags barnanna er www.allirut.is

Jónsmessugöngu FÍ aflýst

Jónsmessugöngu Ferðafélags Íslands á Snæfellsjökul í kvöld hefur verið aflýst.  Örlygur Steinn Sigurjónsson jöklafararstjóri FÍ og göngustjóri í ferðinni er nýkominn af Snæfellsjökli. ,,Aðstæður voru ekki góðar, rok og rigning og skyggni aðeins um 10 metrar og þar sem sprungur eru stórar og opnar eftir snjólítinn vetur getum við ekki gert annað en aflýst ferðinni,"  Þátttakendur í ferðinni fá endurgreitt þátttökugjald eftir helgi. 

Sumarsólstöðuganga á Snæfellsjökul 18.júní

Brottför frá Mörkinni 6 kl. 17 og ekið vestur að jökli. Stutt stopp og fræðsla að Hellnum um þjóðgarð og jökul. Lagt af stað í gönguna kl. 21 og er gengið úr Eysteinsdal að norðanverðu og þar upp sérlega fallega og fáfarna gönguleið. Þátttakendur baða sig í miðnætursólinni á tindi Snæfellsjökuls um miðnættið. Nokkrir listamenn verða með nokkurs konar gjörninga í leiðangrinum og gefst þátttakendum kostur á leggja sitt af mörkum.
Ferðin er farin í samstarfi við Þjóðgarðinn Snæfellsjökul og fylgja landverðir hópnum. Ferðafélag Íslands og Þjóðgarðurinn beita sér fyrir því að umferð vélknúinna ökutækja verði ekki á jökli þennan dag.

Verð: 5000 / 7000 í einkabíl - 7000 / 9000 með rútu.

Skráning og greiðsla fyrir 1. júní

Esjudagur FÍ og VISA 12. júní

Laugardaginn 12, júní n.k frá kl 13 - 16  verður hinn árlegi Esjudagur Ferðafélags Íslands og VISA haldinn.  Boðið upp á gönguferðir á Esjuna í fylgd fararstjóra frá FÍ.  Fjallamenn mæta, ratleikur, skógarganga o.fl.
Sjáumst á laugardag.

Við bendum ykkur á að það gengur strætó frá Háholti Mosfellsbæ leið 57 yfir daginn. Nánari upplýsingar á www.straeto.is
Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir. Nánar auglýst síðar. 

Hálendisbókin - þriðja útgáfa

Hálendishandbók

Hálendishandbókin - ökuleiðir, gönguleiðir og áfangastaðir á hálendi Íslands er komin út í þriðja sinn. Bókin er orðin sígild sem traustur ferðafélagi á hálendinu og í þessari nýju útgáfu eru uppfærðar upplýsingar, nýjar ljósmyndir og nýjar leiðarlýsingar til nokkurra staða.
Höfundur bókarinnar er Páll Ásgeir Ásgeirsson sem situr í stjórn FÍ og fæst við fararstjórn á vegum félagsins.

Fimm tindar í Þingvallaþjóðgarði

Fimm tindar í Þingvallaþjóðgarði með FÍ

Syðstasúla 27. maí
Fararstjórar Sigurður Kristjánsson og Alfreð Hilmarsson
Farið á einkabílum úr Mörkinni 6. kl. 18.
Verð kr. 2.000/3.000
Innifalið: Fararstjórn

Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina á skrifstofu FÍ.

Örganga á miðvikudag

Örganga

Þriðja  gangan um nágrenni Grafarholtsins verður miðvikudaginn 19. maí.  Lagt verður af stað frá vatnsgeymunum kl: 19:00.  Leið:  Gengið um veginn, sem liggur samhliða rörunum frá Nesjavöllum.Þaðan haldið stíg sem liggur um Selbrekkur að Rauðavatni - þaðan vestur með vatninu og upp Lyngdalinn - þaðan um Skálina  og á veginn meðfram hitaveiturörinu.   Leiðin er að nokkru utan stíga og því ráðlegt að vera í góðum gönguskóm.  Þetta er ekki hraðganga.  Ætlaðar eru 1 1/2 - 2 klukkstundir til ferðarinnar.  Örgöngur eru aldrei felldar niður vegna veðurs.

Fararstjórar:  Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson

Örganga í Grafarholti 12. mai

Örganga

Önnur gangan um nágrenni Grafarholtsins verður miðvikudaginn 12. maí.  Lagt verður af stað frá vatnsgeymunum kl: 19:00.  Leið:  Gengið um stíginn, sem liggur að Reynisvatni - þaðan haldið upp á Velli - þaðan um Leirdalsklauf upp á Grenás - þaðan í Skálina  (Paradísardal) - úr Skálinni niður á göngustíginn, sem liggur að - að geymunum.  Leiðin er að nokkru utan stíga og því ráðlegt að vera í góðum gönguskóm.  Þetta er ekki hraðganga.  Ætlaðar eru 1 1/2 - 2 klukkstundir til ferðarinnar.  Örgöngur eru aldrei felldar niður vegna veðurs.

Fararstjórar:  Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson

Barnavagnavika Fí og Ferðafélags barnanna

Barnavagnavika FÍ 10. - 14. maí

FÍ barnavagnavika  FÍ barnavagnavika FI barnavagnavika föstudagur 15. maí FÍ barnavagnavika

Barnavagnavika FÍ og Ferðafélags barnanna hefst í dag kl. 12.30.  Þá verður gengið frá Perlunni um Öskjuhlíð. Gönguferðir með barnavagna og kerrur eru alla daga vikunnar og ávallt kl. 12.30. 
Á þriðjudag er gengið frá Árbæjarsundlaug, á miðvikudag er gengið frá Gerðarsafni í Kópavogi og á fimmtudagsmorgun kl. 10.30 frá Húsdýragarðinum í Laugardal og verður öllum þátttakendum síðan boðið í húsdýragarðinn að göngu lokinni. 
Ekki verður gengið á föstudag,  en boðið upp á gönguferð mánudaginn 17. maí kl. 12.30. Gönguferðirnar eiga að vera léttar og skemmtilegar, með léttum æfingum og teygjum inn á milli  ca 90 mínútur hver gönguferð. 
Fararstjóri er Auður Kjartansdóttir.   Sjá myndir
FÍ barnavagnavika

Með allt á bakinu - bakpokanámskeið - 12 apríl

Námskeið fyrir fólk sem vill kynnast heimi bakpokaferða og fræðast um búnað og fatnað sem þarf til þess að ferðast frjáls eins og fuglinn með allan mat og búnað í einum bakpoka.
Námskeiðið fer fram í sal Ferðafélagsins í Mörkinni 6.

Sjá nánar>>

Bóklegt og verklegt vaðnámskeið

Árlegt vaðnámskeið Ferðafélagsins, bæði bóklegt og verklegt þar sem farið er yfir hvernig hægt er að lesa í ár og vöð og hvernig skuli bera sig að í straumvötnum.  Farið yfir búnað og fleira.
 
Sjá nánar >>

Óvissuferð í Esjunni - Annar í páskum

5. apríl mánudagur annar í páskum
Óvissuferð í Esjunni kl. 11:00, mæting við Esjustofu, undir stjórn Þórðar Marelssonar

Páskahátíð í Esjuhliðum

4. apríl sunnudagur páskadagur kl:11:00
Gengið upp að Steini undir forystu Þórðar Marelssonar, létt morgunganga.
Útitónleikar við Esjustofu, gítarleikur og söngur fjallamannsins fríska.

Páskaeggjaleit í Esjuhlíðum

3. apríl laugardagur kl:11:00
Páskaeggjaleit í Esjuhlíðum, Heyrst hefur að nokkur egg séu af stærstu gerð!  Ganga undir forustu Þórðar Marelssonar, í átt að Gunnlaugsskarði, og jafnvel upp í skarð, jafnvel alla leið, fer eftir veðri og vindum.

Gosstrókar um hundrað metra háir

Mjög vont veður á Fimmvörðuhálsi

Allt að 3500 manns skoðuðu gosið

Rúmlega þúsund manns nálægt gosstöðvunum

Fræðslukvöld um Fimmvörðuháls

Miðvikudagskvöldið 31. mars heldur Ferðafélag Íslands fræðslukvöld um eldgosið á Fimmvörðuhálsi. Þar koma Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur og Steinunn Jakobsdóttir jarðeðlisfræðingur og skýra í máli og myndum frá eldgosinu, þróun þess og líklegri framvindu.
Haraldur Sigurðsson er heimsþekktur eldfjallafræðingur sem hefur á langri starfsævi unnið að rannsóknum á eldfjöllum víða um heiminn og sett fram kenningar og niðurstöður sem vakið hafa athygli um víða veröld. Haraldur hefur sett á fót Eldfjallasafnið í Stykkishólmi og veitir því forstöðu auk þess að sinna rannsóknum og fyrirlestrahaldi.
Haraldur heldur úti síðu á netinu um eldfjöll og virkni þeirra.
Steinunn Jakobsdóttir jarðeðlisfræðingur er verkefnastjóri jarðváreftirlits á Veðurstofu Íslands en sú stofnun vakir yfir öllum eldfjöllum Íslands.
Fræðslukvöldið hefst kl. 20.00 og aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Ekki eru kaffiveitingar eins á á myndakvöldum félagsins.

Skíðaferðum aflýst

Skíðaferðum FÍ,  frá Þingvöllum yfir í Hvalfjörð, skíðadögum á Hesteyri og gönguskíðaferð í Landmannalaugar hefur verið aflýst vegna snjóleysis, krapa ofl.

Gengið með Góu

Næstkomandi sunnudag, 21. mars efna Ferðafélag Ísland og sælgætisgerðin Góa til sérstakrar páskaeggjagöngu á Móskarðshnúka. Gangan hefst kl. 10.00 á sunnudagsmorgun og allir þátttakendur fá að lokinni göngu páskaegg eða ámóta gómsætan glaðning frá Góu.
Gangan hefst við Skarðsá undir Móskarðshnúkum. Til að komast þangað er best að beygja til vinstri rétt ofan við Gljúfrastein í Mosfellsdal og aka afleggjara merktan Hrafnhólar. Við túngarðinn á Hrafnhólum er beygt niður með ánni og stefnt inn í dalinn að sumarbústöðum og þarf að opna hlið á leiðinni. Vegurinn endar á bílastæði við göngubrú yfir Skarðsá.
Þórður Marelsson verður fararstjóri og leiðir hópinn upp á Móskarðshnúka en sá hæsti er 820 metra hár. Gangan ætti því að taka 3-4 tíma og verður gott að fá sér súkkulaði að launum eftir frískandi fjallgöngu.

Ferðaáætlun FÍ 2010 komin út

2010-kapa-150Ferðaáætlun FÍ 2010 er nú komin út og má finna allar ferðir sumarsins í áætluninni og hér á heimasíðunni.

,,Hressilegar áskoranir," segir formaður ferðanefndar FÍ.

Áætlunin má skoða hér >>
 

Ferðaáætlun FÍ 2010 í prentsmiðju

Ferðaáætlun FÍ 2010 er nú í prentsmiðju og kemur til dreifingar til félagsmanna í lok vikunnar.  Ferðaáætlunin er full af áhugaverðum ferðum, dagsferðum, helgarferðum og sumarleyfisferðum, auk skíðaferða og námskeiða af ýmsu tagi. Um leið og ferðaáætlunin kemur út, eða frá og með föstudeginum 29. janúar verður byrjað að bóka í ferðir.  Ný heimasíða FÍ opnar í dag og verða þar allar ferðir í áæltuninni og pdf skjal af Ferðaáæltuninni.

Eitt fjall á viku - Skráning í gangi

Eitt fjall á viku verkefnið hefur fengið frábærar viðtökur og nú er tekið við skráningum í gegnum vefinn. Smellið á hnappinn hér að neðan til að fá frekari upplýsingar um verkefnið og hvernig hægt er að skrá sig.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Um FÍ » Á döfinni

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd