Markmið
Markmið Ferðafélags Íslands er að hvetja til ferðalaga um Ísland og greiða fyrir þeim.
Jafnframt að vekja áhuga Íslendinga á landinu sínu , náttúru þess og sögu og efla vitund þeirra um nauðsyn varfærni í samskiptum manns og náttúru.
Markmiðum sínum nær félagið meðal annars með:
- Ferðaáætlun hvers árs, þar sem í boði eru skipulagðar ferðir um náttúru landsins. Í Ferðaáætlun eru meðal annars, dagsferðir, helgarferðir, sumarleyfisferðir og hálendisferðir.
- Byggingu ferðaskála og þjónustu við ferðamenn í óbyggðum landsins. FÍ og deildir þess eiga 34 ferðaskála á hálendinu og víðar sem standa landsmönnum opnir gegn vægu gjaldi.
- Útgáfustarf: Á hverju ári er gefin út árbók sem fjallar með ítarlegum hætti um afmörkuð, en áhugaverð svæði á Íslandi. Árbækurnar gefa í senn ferðafólki góðar ferðaupplýsingar og veita einnig innsýn í sögu og þjóðlegan fróðleik.
- Ferðafélagið gefur út ýmiskonar smárit og handbækur ár hvert. Hér má finna upplýsingar um útgefið efni um einstök svæði og einnig er hægt að panta með einföldum og þægilegum hætti það efni sem áhuga vekur.
- Félagslif innan FÍ er mikilvægur þáttur í starfinu, þar sem staðið er fyrir myndakvöldum, spilakvöldum, fyrirlestrum og ýmsu öðru.
- Fyrsta ferð á vegum Ferðafélagsins var farin 1929 með 31 þátttakanda. Nú eru farnar um 100 ferðir á ári með yfir 2000 þátttakendum. Á 79 árum hefur Ferðafélagið efnt til meira en 8700 ferða með yfir 205.000 þátttakendum
Nýjar auglýsingar
Til sölu - Fatnaður
Til sölu - Leiðsögutæki
Til sölu - Fatnaður
Tapað / fundið - Tapað
Leit
Mynd






















