Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Umhverfismál


ÞAR ER HELG JÖRÐ

Þér, sem ferðist til þess að njóta fegurðar, hreinleika og göfgi íslenskrar náttúru, lítilsvirðið aldrei fegurstu blettina með því að skilja þar eftir úrgang og matarleifar.

Njótið fegurðarinnar,ilmsins og gróðursins en skiljið við hvern stað svo að hann beri ekki brennimerki eftir komu ykkar.

Þegar þér veljið fegursta blettinn og hvílið yður um stund, þá skiljið ekki við hann í sárum eftir jarðrask.

Virðing fyrir fegurð náttúrunnar er fyrsta skilyrði þess að þér getið notið hennar og hinna göfgandi áhrifa, sem hún veitir.

Munið að hvar sem þér leitið hvíldar í náttúrinni, þar er helg jörð.

( Úr Árbók 1932)

Ferðafélag Íslands hefur með starfi sínu frá upphafi lagt ríka áherslu á virðingu fyrir náttúrunni í samskiptum manns og náttúru.

Meðal annars með:

  • útgáfu ferða og landlýsinga og gerð uppdrátta og leiðarvísa
  • að stuðla að merkingu gönguleiða í óbyggðum og brúargerð á þeim leiðum
  • að kynna náttúru landsins, sögu og menningu með margvíslegum ferðum
  • að stuðla að góðri umgengni ferðamanna og vernd náttúru, m.a. með samstarfi við við umhverfis og náttúruverndaraðila.


Heiðmörk

Árið 1950 var Heiðmörk opnuð almenningi til útiveru og ræktunar.  Ferðafélag Íslands hefur frá upphafi tekið virkan þátt í því sköpunarstarfi sem þar hefur verið unnið. Strax árið 1950 var félaginu úthlutað spildu tril skógræktar og gróðursetti þá þrjú þúsund trjáplöntur.

Á vori hverju efnir félagið til ferða í reit sinn til að hlúa  að gróðri.  Þar hafa verið settar niður 100 þúsund plöntur.  Þessi iðja hefur borið þann ávöst að Skógræktarfélag Reykjavíkur sá ástæðu til að heiðra Ferðafélagið fyrir að hafa ræktað þann reit, sem nú þykir fegurstur félagsreita á Heiðmörk.

Það er mikið lán að Heiðmörk skyldi friðuð, ræktuð og um hana lagðir vegir og göngustígar sem lengjast með ári hverju.  Land þarna er kjörið til útiveru alla daga árs.  Á sumrum nýtur göngumaður dýralífs og gróðurs, á vetrum eru ekki aðrir stígar betri til skíðagöngu.  Í góðviðri sér vítt til fjalla.  Í strekkingier leitað skjóls á þeim stígum sem trjágróður skýlir.

( í Árbók 1985 er fjallað ítarlega um Heiðmörk, sögu fólkvangsins, nafngift og kennileiti.)


Landgræðsla

Í mörg ár hefur Ferðafélagið unnið að landgræðslu á Þórsmörk. Í samvinnu við Landgræðsluna og Skógrækt ríkisins hefur félagið átt hlut að sérstöku átaki í þeim tilgangi að græða upp Þórsmerkurranann og hefta uppblástur sem herjað hefur á Þórsmörk og nágrenni. Þær deildir Ferðafélagsins sem eiga skálann í Kverkfjöllum hafa gert tilraun til að rækta upp tjaldstæði í nágrenni skálans sem er í 880 m hæð yfir sjó.  Þessar tilraunir lofa góðu.

 

 


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Um FÍ » Umhverfismál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd