Laugardaginn 5. janúar er á dagskrá fyrsta gangan í nýju 52 fjalla verkefni Ferðafélags Íslands. Gengið verður á Úlfarsfellið sem er 280 metra hátt. Gangan hefst við rætur fjallsins að sunnan og til þess að komast að upphafsstað göngu skal aka þjóðveg eitt (Suðurlandsveg) að Bauhaus, beygja þar inn á Lambhagabraut, beygja inn á Mímisbrunn, aka hann að Skyggnistorgi og síðan Skyggnisbraut að bílastæði þar sem gangan hefst. Sjá nánar á korti hér.
Þeir sem vilja verða samferða öðrum hittast í Mörkinni 6, við skrifstofur Ferðafélags Íslands rétt fyrir kl. 10.00 á laugardagsmorgun og þaðan er ekið í halarófu kl. 10.00 stundvíslega að upphafsstað göngu. Gangan tekur um 2.5 klst. og hækkun á göngu er um 200 metrar en vegalengd 4.5 km alls.
Fyrstu tvær göngur verkefnisins eru öllum opnar en þeir sem vilja skrá sig til fullrar þátttöku geta hringt á skrifstofu Ferðafélagsins í síma 568-2533 eða sent póst á fi@fi.is.
Búist er við sunnanátt og úrkomu á laugardaginn. Klæðið ykkur vel og þeir sem eiga mannbrodda skulu taka þá með því hugsanlega verður hált í spori.
Hér fyrir neðan er kort sem sýnir ökuleiðina frá Bauhaus að upphafsstað göngu.
Ferðafélag Íslands stendur fyrir fjallaverkefnunum Eitt fjall á viku og Eitt fjall á mánuði og verða bæði verkefnin kynnt í upphafi árs 2013 á sérstökum kynningarfundum. Eitt fjall á viku verður kynnt 2. janúar og Eitt fjall á viku 8 dögum síðar.
Eitt fjall á viku og Eitt fjall á mánuði eru tilvalin verkefni til að skora á sjálfan sig að stunda fjallgöngur, útiveru og heilbrigðan lífsstíl og bæta þrek og þol og heilsu almennt. Áramótin er góður tími til að stíga á stokk og strengja heit um þessi góðu markmið.
Hækkun 24.000 m. Vegalengd 450 km.
02 jan kl 20.00 Kynningarfundur í sal FÍ, Mörkinni 6
05. jan. Úlfarsfell
12. jan. Mosfell
19. jan. Helgafell við Hafnarfjörð
23. jan. Fræðslufundur kl 20.00
26. jan. Skálafell á Mosfellsheiði
03. feb. Húsfell
10. feb. Reykjafell á Hellisheiði
17. feb. Skálafell á Hellisheiði
24. feb. Kerhólakambur
02. mars. Stóri Meitill
09. mars. Ingólfsfjall
16. mars. Geitafell
23. mars. Heiðarhorn
27. mars. Blákollur
PÁSKAFRÍ
07. apríl Botnssúlur
14. apríl Akrafjall hringur
21. apríl Móskarðahnjúkar
28. apríl Hafnarfjall
01. maí Dýjadalshnjúkur
11. maí Hvannadalshnjúkur
15. maí. Vífilsfell
22. maí. Eyrarfjall
1.-2. júní. Þórsmörk: Rjúpnafell, Tindfjöll, Útigönguhöfði, Réttarfell og Dímon.
08. júní. Skessuhorn12. júní. Hrómundartindur
29. júní. Þrjú fjöll: Búrfell, Vörðufell og Mosfell
SUMARFRÍ
07. ágúst. Grímmansfell
10. ágúst. Skjaldbreiður
25. ágúst. Vestmannaeyjar. Heimaklettur og Eldfell.
30. – 01. sept. Landmannalaugar: Vörðuhnjúkur, Skalli, Brennisteinsalda, Bláhnjúkur og Löðmundur.
08. sept. Ok.
22. sept. Hvalfell.
29. sept. Keilir.
05. okt. Kistufell.
12. okt. Þríhyrningur.
26. okt. Stóra Kóngsfell.
03. nóv. Þyrill
10. nóv. Græna Dyngja.
24. nóv. Ármannsfell.
07. des. Skeggi úr Dyradal.
21. Helgafell í Mosfellssveit.
31. Öskjuhlíð.