Mikið úrval ferða í ferðaáætlun FÍ 2021

,,Allt frá gönguleiðum í byggð, yfir á hæstu tinda landsins,
,,Allt frá gönguleiðum í byggð, yfir á hæstu tinda landsins," segir Sigrún Valbergsdóttir formaður ferðanefndar um úrval ferða í ferðaáætluninni.
Myndina tók Hermann Þór Snorrason í ferð FÍ Alla leið á Hrútsfjallstinda sl. vor.

,,Sígildar ferðir og nýjar í bland, dagsferðir, helgarferðir og sumarleyfisferðir, lýðheilsuverkefni, fjallaverkefni, hreyfihópar, Ferðafélag barnanna og FÍ Ung. Það eiga allir að geta fundið ferðir við sitt hæfi,” segir Sigrún Valbergsdóttir formaður ferðanefndar FÍ um nýútkomna Ferðaáætlun FÍ 2021.

Ferðaáætlun Ferðafélags Íslands 2021 er komin út hefur verið birt hér á heimasíðu FÍ.  Að þessu sinni verður ferðaáætlunin ekki prentuð og var stjórn félagsins þar fyrst og fremst að horfa á umhverfissjónarmið en einnig til þess hve birting á samfélagsmiðlum er orðin sterk og stór hluti af hegðunar- og neyslumynstri fólks. Að sama skapi býður netbirting upp á meiri sveigjanleika eins og reynslan sýndi við þær sérstöku aðstæður sem voru á árinu sem er að líða. Flettiforrit með ferðaáætluninni og prentvæn pdf skjöl til heimaprentunar eru að finna á heimasíðu FÍ.

Sigrún Valbergsdóttir formaður er fararstjóri í nokkrum ferðum FÍ á hverju ári, meðal annars í sögugöngunni sem nýtur mikilla vinsælda.  Hér er flottur hópur í sögugöngu hjá Sigrúnu sem er fyrir miðri mynd. 

Sumar ferðir eru sígildar

Sigrún segir áherslurnar geta verið nokkuð breytilegar en þó séu sígildar og vinsælar ferðir alltaf endurteknar eins og á Hornstrandir, í Lónsöræfi og að sjálfsögðu Laugavegsgöngur. Þá eru einnig nokkrar dagsferðir sígildar eins og Leggjabrjótur á 17. júní og Síldarmannagötur að hausti.

„Svo eru geysivinsælar fjallaskíðaferðir, ekki alltaf þó á sömu svæði og sama má segja um Sögugöngurnar sem eru í áætluninni, en eru alltaf á nýjum slóðum.“ Sigrún bendir líka á að á meðan sum landssvæði komist í tísku detti önnur út og að þau fylgist vel með því.

Kostnaður við ferðirnar skiptir máli sem og fjölbreytni

„Við reynum að hafa verð ferðanna eins hagstætt og hægt er, minnka trúss og annað sem hleypir upp kostnaði. Við horfum til þess að allt landið er undir í þessari áætlun og sömuleiðis fylgjumst við vel með þegar út koma bækur með leiðarlýsingum á svæðum sem lítið hefur verið horft til. Svo eru félagar í FÍ á öllum aldri og það þarf að vera mikil fjölbreytni i ferðaframboðinu. Allt frá léttum dagsferðum yfir í fjögurra skóa langar sumarleyfisferðir, þar sem gengið er með allt á bakinu og gist í tjöldum yfir í ferðir með rútu þar sem gist er í uppbúnum rúmum á gistihúsum og allt þar á milli.“

Nýjungar nauðsynlegar

„Það er alger nauðsyn að bjóða upp á nýjungar og á það leggjum við mikla áherslu. Það eru yfirleitt 30-40% nýjar ferðir í áætluninni hverju sinni.“

„Það er öflugt teymi sem kemur að því að setja saman Ferðaáætlun FÍ. Teymið samanstendur af sjö manna Ferðanefnd og starfsfólki skrifstofunnar sem heldur utan um ferðarekstur félagsins. Þetta teymi er gríðarlega reynslumikið og víðförult og hefur því góða yfirsýn og þekkingu á landinu öllu, ásamt öllum okkar fararstjórum sem leiða ferðirnar.“ „Fjallaverkefnin, lýðheilsuverkefnin og hreyfihóparnir hafa sína föstu umsjónarmenn sem vinna þétt með skrifstofunni. Við byrjum þessa vinnu um leið og sumarvertíðinni er að ljúka, þá koma í ljós viðtökur áætlunar síðasta árs og það er í raun það fyrsta sem lagt er til grundvallar fyrir næstu áætlun. Auk eigin hugmynda leitum við eftir tillögum frá fararstjórum og oft berast tillögar að ferðum frá félögum í FÍ. Þetta er alltaf jafn spennandi vinna og sumarið er ekki búið þegar plönin fyrir næsta sumar verða til.“

Ferðir deilda FÍ

Sigrún  segir deildir Ferðafélagsins um allt land skila sínum tillögum að áliðnu hausti á sama tíma og Ferðanefndin er að ljúka störfum og allar ferðir deilda eru að finna í áætluninni að venju.