Á árinu 2027 fagnar Ferðafélag Íslands 100 ára afmæli sínu með veglegri dagskrá þar sem þessum merka áfanga í sögu félagsins verður fagnað. Samhliða því gefst félögum kostur á að kaupa sérmerktan útivistarfatnað.
Í samstarfi við Fjallakofann býðst félögum að kaupa jakka og peysur frá Rab á sérstöku afmælistilboði.
Um er að ræða vandaðan og sérmerktan afmælisfatnað sem gefur félögum einstakt tækifæri til að taka þátt í afmælisárinu með sýnilegum hætti í tilefni 100 ára afmælis félagsins
Fatnaðurinn er merktur með sérstakri afmælisútgáfu af merki Ferðafélags Íslands á hægra brjósti og íslenska fánanum á upphandlegg.
Nú eru síðustu dagar til að forpanta jakka og peysur á sérstöku afmælistilboði í tilefni af 100 ára afmæli Ferðafélags Íslands 2027. Síðasti dagur til að panta er 8. maí - ekki missa af !
Tryggðu þér fatnað með því að skila inn pöntun sem fyrst – ekki verður hægt að bæta við pöntunum eftir að forpöntun lýkur.
Greiðsla fer fram við afhendingu og fatnaðurinn verður afhentur á árinu 2027.
Hægt er að mæta á skrifstofu FÍ í Mörkina 6 og máta og panta fatnað, en það er einnig hægt að panta með því að smella hér á ,,Panta afmælisfatnað" ef fólk þekkir stærðirnar sínar.
