Fjölskyldugöngur á fellin í Mosfellsbæ

Fjölskyldugöngur á fellin í Mosfellsbæ

Mosfellsbær og Ferðafélag Íslands standa fyrir fjölskyldugöngum á fellin í Mosfellsbæ alla þriðjudaga í apríl og fyrstu þrjá þriðjudagana í maí.

Um er að ræða heilsueflandi viðburði þar sem gengið er rólega og fararstjórar miðla af þekkingu og reynslu. Tveir fararstjórar verða í hverri ferð og er þátttaka ókeypis – verið öll velkomin.

Þátttakendur eru hvattir til að mæta í útivistarfatnaði og góðum gönguskóm, með bakpoka og nestisbita, auk heits kakós eða tes á brúsa.

Dagskrá

    1. apríl kl. 17:30 – Úlfarsfell
    1. apríl kl. 17:30 – Reykjaborg
    1. apríl kl. 17:30 – Reykjafell
    1. apríl kl. 17:30 – Æsustaðafjall
    1. maí kl. 17:30 – Grímannsfell
    1. maí kl. 17:30 – Mosfell
    1. maí kl. 17:30 – Helgafell

Nánari upplýsingar má finna á mos.is/vidburdir

Hafrahlíð og Reykjaborg

Þriðjudagur 14 apríl kl. 17.30 

Lýsing

Fellið fyrir ofan Hafravatnið er ýmis nefnt Hafrahlíð (245 m) eða Hafrafell. Gömul rétt. Hafravatnsrétt er rétt við veginn norðan vatnsins og þar hefja menn að jafnaði göngu á Hafrafell. Fyrst er gengið eftir slóða gegnum skógrækt en fljótlega greinist leiðin og skal taka vinstri slóðina. Henni er fylgt yfir bílveg og haldið áfram upp á brúnir Hafrafells. Fyrir flesta liggur beint við að halda svo áfram eftir brún Hafrafells því slóðin heldur áfram yfir á Reykjaborg (286 m) sem rís yfir brúnina skammt austan við Hafrafell. Þannig fást tvö fjöll fyrir eitt og þykir gott.

Svo liggur beinast við að halda ofan aftur svipaða leið en stígarnir á þessi tvö þægilegu fell eru vel merktir og greinargóðir. Tilvalin fjölskylduganga.