Gönguhópar og fjallaverkefni FÍ - fullbókað í flesta hópa

Ferðafélag Íslands býður upp á fjölbreytta dagskrá í fjölmörgum gönguhópum og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Ferðafélag Íslands býður upp á fjölbreytta dagskrá í fjölmörgum gönguhópum og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Ferðafélag Íslands býður upp á fjölmarga gönguhópa og fjallaverkefni sem snúast um reglulegar fjallgöngur, heilsubót og góðan félagsskap.

Þegar er orðið fullbókað í nokkra gönguhópa.

Meginmarkmið þessara hópa er útivera, náttúruupplifun, gleði og góður félagsskapur. Eins og í öllum ferðum Ferðafélags Íslands er mikil áhersla lögð á fræðslu og öryggi á fjöllum.

Flestir gönguhóparnir hefjast í upphafi árs og standa ýmist í nokkra mánuði, hálft ár eða heilt ár.

Sjá nánar alla gönguhópa FÍ