Tour: Leitað að skrímslum á Grjótárdal 

Are you a member of FÍ Yes No
Vesturland

Leitað að skrímslum á Grjótárdal 

Bíll og bakpoki
Description

Stutt gönguferð með allt á bakinu um fáfarnar slóðir á Snæfellsnesi. Ferðin hefst við túngarðinn í Hítardal og gengið er um hraun og fagra dali um Þórarinsdal, undir Smjörhnúk og Tröllakirkju í fótspor sauðkindarinnar. Gist verður við Háleiksvatn hátt í fjöllunum vestan Hítardals og þaðan gengið niður að Grjótárvatni sem eru þekktar skrímslaslóðir. Haldið aftur niður í Hítardal um Sléttaskarð.
Þessi leiðangur er hentugur fyrir þá sem vilja kynnast þeim frábæra ferðamáta að ganga með allt á bakinu.

Departure/Attendance
Kl 10 að morgni við réttina í Hítardal.
Tour Guides

Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir.

Included
Fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir bakpokaferð

Þegar gengið er með allt á bakinu er nauðsynlegt að skera útbúnað niður eins og hægt er, án þess að sleppa nauðsynjum. Hafið bakpokann ekki þyngri en þið treystið ykkur til að bera. Hæfileg þyngd fer eftir líkamsástandi hvers og eins en oft er miðað við að bakpoki skuli ekki vera þyngri en 15-20% af líkamsþynd þess sem ber hann.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála, þá má í flestum skálum Ferðafélags Íslands finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis/kamars með klósettpappír.

Ýmislegt

  • Bakpoki, ekki of stór
  • Svefnpoki, léttur og hlýr
  • Bakpokahlíf / plastpokar inn í bakpokann
  • Tjald og tjalddýna
  • Göngustafir
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Höfuðljós
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Broddar, ef þurfa þykir
  • Peningar

Snyrtivörur / sjúkravörur

  • Hælsærisplástur, plástur og teygjubindi
  • Verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði / þvottapoki
  • Sólvarnarkrem og varasalvi
  • Eyrnatappar

Mataráhöld / eldunartæki

  • Prímus, eldsneyti og pottur
  • Eldspýtur
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Vasahnífur / skæri

Fatnaður

  • Góðir gönguskór
  • Vaðskór / skálaskór
  • Tvö pör mjúkir göngusokkar
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Nærbuxur til skiptana
  • Nærföt, ull eða flís
  • Flís- eða ullarpeysa
  • Millilag úr ull eða flís
  • Göngubuxur
  • Stuttbuxur
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar

Matur

  • Frostþurrkaður matur
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Haframjöl
  • Smurt brauð og flatkökur
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Route Description

1.d., laugard. Þátttakendur leggja af stað frá réttinni við bæinn í Hítardal. Leiðin liggur fram Hítardal um slétt land og hækkar svo hægt og rólega upp á Þórarinsdal. Fagrir fossar, tignarlegir tindar og gróið land með fossum. Tjaldað í lok dags fremst á Þórarinsdal við mynni Tröllkonugils.
Ganga: 17 km. Hækkun
350 m.


2.d.
Gengið upp með Tröllkonugili yfir að Háleiksvatni. Þaðan niður Grjótárdal að Grjótárvatni, vaða þarf Grjótána einu sinni á leiðinni. Förum yfir Sléttaskarð og niður að bænum í Hítardal á ný. Fagrir eyðidalir og grösugar engjar. Grjótárvatn er þekktur dvalarstaður skrímsla og til margar sagnir um þau.
Ganga: 17 km. Hækkun 200 m.

Þátttakendur fá nánari upplýsingar og búnaðarlista í tölvupósti þegar nær dregur ferðinni. 

Sjá hér upphafstaður göngunar