Bræðrafell
- Lýsing
Herðubreiðarlindir - Bræðrafell - Askja
Ekið með rútu í Herðubreiðarlindir. Gist er í skálum FFA við Bræðrafell og Drekagil. Bera þarf allan farangur og því mikilvægt að huga að því sem tekið er með. Svæðið sem farið er um státar af fallegum hraunmyndunum, auðn, litadýrð og ekki síst mikilli kyrrð. Nálægðin við Herðubreið hefur líka sín áhrif.- Brottför/Mæting
- Kl. 8 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
- Fararstjórn
Fararstjórn: Fjóla K. Helgadóttir og Hjalti Jóhannesson.
- Innifalið
- Rúta, gisting og fararstjórn
Leiðarlýsing
1.d., sunnud. Ekið í Herðubreiðarlindir. Eftir kaffi er gengið um greiðfært hraun í Bræðrafell og gist þar. Taka þarf með vatn til dagsins. Vegalengd: 19 km.
2.d. Gengið á Kollóttudyngju og Bræðrafell skoðað. Gist í Bræðrafellsskála aðra nótt.
Vegalengd: 8-12 km.
3.d. Gengið frá Bræðrafelli í Drekagil. Gist í skála FFA við Drekagil.
Vegalengd: 21-22 km.
4. d. Gengið frá Drekagili yfir Dyngjufjöll að Öskju. Ekið heim um kvöldið.
Vegalengd: 10-11 km.