Ævintýraferðir fjölskyldunnar fara á Víknaslóðir
- Lýsing
Fjölskylduferð á Víknaslóðir. Frábær ferð fyrir krakka á aldrinum 6-16 ára. Gengið um stórbrotið landslag í Kækjudal, skoðaðar gamlar rústir bæja í Loðmundarfirði. Svo er farin falleg leið inn Gunnhildardal til Herjólfsvíkurvarp. Að lokum er gengið frá Breiðuvík til Borgarfjarðar í gegnum hina undirfögru Brúnuvík.
- Brottför/Mæting
- 29.júní
- Fararstjórn
Þórdís Kristvinsdóttir og Hildur Bergsdóttir
- Innifalið
- Skálagisting, trúss, kjötsúpa síðasta kvöldið og fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð
Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.
Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.
Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Í trússtöskunni
- Svefnpoki og lítill koddi
- Bolur til skiptana og til að sofa í
- Auka nærbuxur og sokkar
- Höfuðljós
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði
- Eyrnatappar
- Skálaskór
- Peningar
- Núðlur eða pasta í pokum
- Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
- Eitthvað gott á grillið
- Kol og uppkveikilögur
- Haframjöl
- Brauð og flatkökur
- Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna
- Tjald og tjalddýna
- Prímus og eldsneyti
- Eldspýtur
- Pottur
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Vasahnífur / skæri
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
Leiðarlýsing
29. júní Keyrt að upphafsstað göngu sem er við brúna yfir Þverá inn í Borgarfirði.
Gengið upp Kækjudal og yfir Kækjuskörð. Í Kækjudal má sjá stórbrotið landslag með allskonar myndum í tröllslegum steinum.
Lengd 15 km. og hækkun 780 metrar.
30. júní Gengið út Loðmundarfjörð, upp Hryggjabrekku og út á Grjótbrún, niður Nesháls í Húsavíkurskála.
Á leið okkar í Loðmundarfirði munum við sjá gamlar rústir bæja og undurfagra náttúru.
Lengd 14 km. og hækkun 458 metrar.
1. júlí Gengið frá Húsavíkurskála yfir í Breiðuvíkuskála
Farin verður falleg leið inn Gunnhildardal yfir Herjólfsvíkurvarp. Áður en farið er yfir Varpið þá heilsum við upp á Halldórustein og kíkjum á tröllinn í Mosdal, komum niður á fjöru við Litluvík í Breiðuvík.
Lengd 14 km. og hækkun 678 metrar
2. júlí Gengið frá Breiðuvík til Borgarfjarðar í gegnum hina undirfögru Brúnuvík. Þegar komið er til
Borgarfjarðar endum við í heimsókn hjá lundunum.
Lengd 15 km. og hækkanir eru tvær; Súluskarð 390 metrar og Brúnavíkurskarð 380 metrar.