Ferð: Ævintýraferð um slóðir drauga og útilegumanna á Kili 

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Hálendið

Ævintýraferð um slóðir drauga og útilegumanna á Kili 

Ferðafélag barnanna
Lýsing

Skemmtileg trússuð fjölskylduferð um Kjalveg hinn forna og kyngimagnaðar draugaslóðir Reynistaðabræðra, Fjalla-Eyvindar og Höllu. Gist er í skálum Ferðafélags Íslands í Þverbrekknamúla og Hvítárnesi. Auðveldar dagleiðir fyrir yngri kynslóðina. Tilvalin leið til að ljúka sumrinu og búa sig undir skóla og vinnu.
Sameiginleg grillmáltíð ekki innifalin í verði.

Brottför/Mæting
Kl. 8 með rútu frá Reykjavík
Fararstjórn

Steinunn Leifsdóttir og Jóhann Aron Traustason

Innifalið
Gisting, rúta, trúss og farastjórn. 

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Leiðarlýsing

1.d. laugard. Ekið inn að Þröskuldi við Þjófadali, dagpokar axlaðir og gengið sem leið liggur í Þverbrekknamúla undir hrikalegu Hrútfellinu. Á leiðinni kynnumst við sögu Reynistaðabræðra sem er líklega með magnaðri draugasögum landsins.
Ganga: 15. km Göngutími: 6-7 klst með góðum nestisstoppum á leiðinni.

2.d. Gengið inn í fegurðina og kyrrðina í Hvítárnesi þar sem við ætlum að grilla og njóta. Um kvöldin er kvöldvaka með heimatilbúnum skemmtiatriðum.
Ganga: 15 km. Göngutími:  6-7 klst með góðum nestisstoppum á leiðinni

3.d. Frágangur í skála. Brottför frá Hvítárnesi um hádegi

Þjóðlendur Íslands.
Í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins og þess að starfi óbyggðanefndar er að ljúka verður efnt til gönguferða um þjóðlendur í þeim tilgangi að kynna þær fyrir almenningi. Samstarf verður við Ferðafélag Íslands og deildir FÍ í hverjum landsfjórðungi um gönguferðir og fræðslu um þjóðlendur. Gönguferðirnar verða sumarið 2024.