Höfðarnir við Hvaleyrarvatn
- Lýsing
Gengið um Höfðaland sunnan og austan við Hvaleyrarvatn. Haldið í áttina að Seldalshálsi og gengið upp á Stórhöfðaöxl og efsta hluta Stórhöfða.
Þaðan er haldið í áttina að Bugum og Kaldárhrauni. Gengið eftir vegslóða í áttina að Þormóðshöfða á Langaholti og skógræktarstígum fylgt til baka í áttina að Hvaleyrarvatni. Göngutími: 1,5-2,0 tímar- Brottför/Mæting
- kl. 19 frá bílastæðinu vestan við Hvaleyrarvatn
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Örgöngur 2024
- 15. maí, Flensborgarhöfn og nágrenni
- 22. maí, Hafnarfjarðarhraun og Vifilsstaðalækur
- 29. maí, Höfðarnir við Hvaleyrarvatn
- 21. sept, Selin í Hraunum
Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis.