Yfirlitskort skála
Skálar Ferðafélags Íslands og deilda FÍ eru á alls 40 stöðum víðs vegar um landið.
Innan Ferðafélags Íslands eru starfandi 15 sjálfstæðar ferðafélagsdeildir um allt land. Hægt er að skrá sig í deildir á heimasíðum þeirra á þar til gerðum eyðublöðum og eða með því að senda viðkomandi deild tölvupóst með upplýsingum um nafn, kt og heimilisfangi. Félagar í deildum FÍ njóta sömu réttinda og kjara og félagar í Ferðafélagi Íslands.
Ferðafélögin á landsbyggðinni starfa samkvæmt lögum FÍ og í anda Ferðafélagsins en eru með eigin stjórn og sja´lfstæðan fjárhag og bera ábyrgð á öllu sínu starfi.
Mismunandi eftir hverju félagi stendur það fyrir eigin ferðum og ferðaáætlun, á og rekur fjallaskála og sinnir margvíslegu fræðslu og útgáfustarfi í heimabyggð.
Skálar Ferðafélags Íslands og ferðafélagsdeilda FÍ eru á alls 41 stað víðs vegar um landið. Allir geta notað skálana, óháð aðild að Ferðafélaginu en félagsmenn njóta afsláttarkjara.
Nánar um starfsemi hvers ferðafélags, upplýsingar um skála og ferðir má finna hér neðar.