Fararstjóri
Auður ólst upp á ferðalögum og miklu flakki á milli þess sem hún lék sér við Þingvallavatn, ýmist við að klífa kletta, synda í vatninu eða rannsaka pöddur með stækkunargleri.
Um leið og Auður hafði aldur til gekk hún í Kópavogsskátanna sem varð hennar annað heimili. Hún var lengi undanfari í björgunarsveitinni og um tíma yfirkennari í Björgunarskóla Landsbjargar starfaði í nokkur ár sem Ski Patrol í Whistler í Kanada.
Auður varð fyrst fararstjóri fyrir Ferðafélagið aðeins 18 ára gömul þegar hún gekk Laugaveginn og síðan eru ferðirnar orðnar æði margar. Hún starfaði í nokkur ár sem leiðsögumaður fyrir Íslenska fjallaleiðsögumenn, aðallega á Öræfajökul og hefur gengið tæplega 80 sinnum á Hvannadalshnúk.
Auður var einn af hvatamönnum að stofnun Ferðafélags barnanna árið 2009 og hefur leitt barnavagnaviku Ferðafélags barnanna og fjölskylduferðir í Norðurfjörð.
Auður er menntaður landfræðingur og starfar sem sérfræðingur á snjóflóðasviði Veðurstofunnar og hefur öll próf sem hægt er að taka sem fararstjóri og leiðsögumaður.
Gott landakort og áttaviti.
Vatnajökull.