Fararstjóri
Örlygur Steinn Sigurjónsson hefur annast fararstjórn fyrir Ferðafélag Íslands frá árinu 2005 en hann kynntist á unglingsaldri fjallamennsku og útiveru í gegnum Ferðafélagið og síðar Íslenska alpaklúbbinn.
Örlygur er útskrifaður gönguleiðsögumaður frá Leiðsöguskóla Íslands. Hann hefur þar að auki sótt námskeið í leiðsögn hjá innlendum sem erlendum aðilum. Auk gönguferða, eru fjallahjólaferðir og kayakútilegur líka ofarlega á lista yfir skemmtilegar athafnir hans. Hann hefur annast FÍ ferðir á Hvannadalshnúk í áratug, auk ferða á nágrannatinda Hnúksins.
Örlygur er blaðamaður og kennari að mennt og hefur sinnt hvorutveggja um árabil auk þess að starfa sem stuðningsfulltrúi með fötluðum börnum.
Vasahnífur og súkkulaði.
Snæfellsnes. Þar finnur hjóla-, göngu- og kayakfólk margt sem hugurinn girnist.