Ferð: Úlfarsfell

Suðvesturland

Úlfarsfell

Alla miðvikudaga fram í desember
Lýsing

Alla miðvikudaga fram í desember mun Ferðafélag Íslands ganga á Úlfarsfell.

Úlfarsfell er eitt vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarbúa og daglega leggur fjöldi fólks leið sína á fjallið. 

Ganga byrjar kl. 18  hjá stóra bílastæðinu Úlfarsárdals megin

Ganga tekur um 1,5 tíma . 

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.

Brottför/Mæting
kl. 18, á stóra bílaplaninu við Úlfarsárdals megin

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir