Norðurland
Barna- og fjölskylduferð: Ævintýraferð í Botna
Ferðafélag Akureyrar - Deildarferð
- Lýsing
Ekið í Svartárkot í Bárðardal. Þaðan er gengið eftir bílslóða í Suðurárbotna í skálann Botna þar sem verður gist eina nótt. Daginn eftir er gengið til baka sömu leið í Svartárkot. Í Suðurárbotnum er ævintýralegt umhverfi með mörgum litlum tjörnum. Þó leiðin sé nokkuð löng er hún auðveld yfirferðar. Hér eru upplýsingar um skálann.
Ganga: 15 - 16 km hvor leið. Hækkun: lítil- Brottför/Mæting
- Kl. 9:00 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
- Fararstjórn
Fjóla Kristín Helgadóttir , Sunna og Ragnheiður Ragnarsdætur
- Innifalið
- Gisting í eina nótt fyrir einn fullorðinn og börn og fararstjórn.
Ferðafélag Akureyrar
Þessi ferð er á vegum Ferðafélags - Akureyrar
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Ferðafélag Akureyrar
Netfang: ffa@ffa.is
Sími: 4622720