Ferð: Herðubreiðarlindir - Bræðrafell - Askja

Hálendið

Herðubreiðarlindir - Bræðrafell - Askja

Ferðafélag Akureyrar -Deildarferð
Lýsing

Ekið með rútu í Herðubreiðarlindir. Gist er í skálum FFA við Bræðrafell og Drekagil. Bera þarf allan farangur og því mikilvægt að huga að því sem tekið er með. Svæðið sem farið er um státar af sérkennilegum og fallegum hraunmyndunum, auðn, litadýrð og ekki síst mikilli kyrrð. Nálægðin við Herðubreið hefur líka sín áhrif.

Brottför/Mæting
kl. 8:00 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn

Selma S. Malmquist

Innifalið
Rúta, gisting í þrjár nætur og fararstjórn.

Ferðafélag Akureyrar

Þessi ferð er á vegum Ferðafélags - Akureyrar
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Ferðafélag Akureyrar

Netfang: ffa@ffa.is
Sími: 4622720

Leiðarlýsing

1.d., sunnudagur: Ekið í Herðubreiðarlindir. Eftir kaffi er gengið um greiðfært hraun í Bræðrafell og gist þar. Taka þarf með vatn til dagsins.
Vegalengd: 19 km.

2.d., mánudagur: Gengið á Kollóttudyngju og Bræðrafell skoðað. Gist í Bræðrafellsskála aðra nótt.
Vegalengd: 8 - 12 km.

3.d., þriðjudagur: Gengið frá Bræðrafelli í Drekagil. Gist í skála FFA við Drekagil.
Vegalengd: 21 - 22 km.

4. d., miðvikudagur: Gengið frá Drekagili yfir Dyngjufjöll að Öskju. Ekið heim um kvöldið. Vegalengd: 10 - 11 km.