Ferð: Skíðaganga í Laugafell

Norðurland

Skíðaganga í Laugafell

Ferðafélag Akureyrar -Deildarferð
Lýsing

Um þriggja daga vetrarferð er að ræða og þurfa þátttakendur að vera útbúnir samkvæmt því. Nauðsynlegur búnaður eru utanbrautarskíði með stálköntum, hlýr fatnaður, hlýir skór, bakpoki eða púlka.

Gist verður í skálunum Berglandi og Laugafelli.

Brottför/Mæting
Kl. 13 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Fararstjórn

Selma S. Malmquist

Innifalið
Gisting í tvær nætur og fararstjórn.

Ferðafélag Akureyrar

Þessi ferð er á vegum Ferðafélags - Akureyrar
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Ferðafélag Akureyrar

Netfang: ffa@ffa.is
Sími: 4622720

Leiðarlýsing

1.d., föstudagur: Hólsgerði - Bergland
Ekið að Hólsgerði og skíðin spennt á gönguhópinn. Gist í Berglandi. Skíðað: 15 km. Hækkun: 840 m.

2.d. Bergland - Laugafell
Ef veður er gott þá verður gengið um Sesseljubæ í Geldingsárdrögum á leiðinni í Laugafell. Laugin í Laugafelli bíður ylvolg eftir lúnum göngumönnum. Gist í Laugafelli. Skíðað: um 20 km. Hækkun óveruleg.

3.d., sunnudagur: Laugafell - Hólsgerði
Stefnt á að vera komin að fremsta bæ í Eyjafirði fyrir myrkur. Skíðað: 35 km, töluvert undan fæti í lok dags.