Ferð: Víknaslóðir - Um eyðivíkur, firði og fjallaskörð

Austurland

Víknaslóðir - Um eyðivíkur, firði og fjallaskörð

Ferðafélag Fljótsdalshéraðs Deildarferð
Lýsing

Víknaslóðir er göngusvæði sem engan svíkur. Þar blandast saman fallegir firðir, víkur og stórfengleg fjalla-sýn hvert sem litið er. Í þessari ferð má segja að göngufólk tipli yfir það helsta sem svæðið hefur upp á að bjóða en mælt er þó með því að koma aftur og skoða ýmsa ómissandi „útúrdúra“ sem verða óhjákvæmilega eftir.

Brottför/Mæting
Kl.10 Ekið frá félagsheimilinu Fjarðarborg, Borgarfirði eystri
Fararstjórn

Þórdís Kristvinsdóttir

Innifalið
Skálagisting, trúss og fararstjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Ferðafélag Fljótsdalshéraðs

Þessi ferð er á vegum Ferðafélags Fjótsdalshérað

Nánari upplýsingar og skráning í ferð fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið: ferdaf.@ferdaf.is 
Sími: 8635813

Alla nánari  upplýsingar er að finna á heimasíðu Ferðafélag Fljótsdalshéraðs

1.d. Kl.10:00 Ekið frá félagsheimilinu Fjarðarborg að upphafsstað göngu. Gengið er upp Kækjudal yfir Kjækjuskörð, komið niður á fitjar í Hraundal, og gengið úr Hraundal inn í Klyppstað. Gist eina nótt í skála ferðafélagsins að Klyppstað í Loðmundarfirði. Ganga: 16,5 km

2.d. Gengið frá Loðmundarfirði yfir í Húsavík. Gengið verður frá skála að strönd og þaðan haldið að höfn. Frá höfninni er gengið að Stokkhamar og þaðan upp undir Rjómatindsbrík, undir Goðaborg, niður í Skollabotna, upp á Neshálsinn og niður í Húsavík. Gist eina nótt í skála ferðafélagsins í Húsavík. Ganga: 15 km

3.d. Gengið frá Húsavík í Breiðuvík. Hér er ýmist farið um Húsavíkurheiði og niður Víknaheiði til Breiðuvíkur en ef vel viðrar, er farið inn Gunnhildardal yfir Herjólfsvíkurvarp, niður Mosdal, gengið í rótum Leirfjalls, yfir Dalsvarp og niður Litluvíkurdal að fjöru í Breiðuvík. Gist eina nótt í skála ferðafélagsins í Breiðuvík.Ganga: 14,5 km

4.d. Gengið frá Breiðuvík yfir Súluskarð niður í Brúnuvík, farið er yfir Brúnuvíkurskarð yfir á Borgarfjörð og gengið niður að höfn þar sem ganga endar. Ganga: 16 km.

Ef breyta þarf leið eftir veðri og skyggni þá mun fararstjóri gera það. Ýmsar leiðir eru í boði á Víknaslóðum