Ferð: Bláfjöll - Hlíðarendi

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Suðvesturland

Bláfjöll - Hlíðarendi

Ferðaskíði
Lýsing

Ekið á einkabílum að Hlíðarenda þar sem rútan bíður og ekur okkur að upphafsstað göngunnar í Bláfjöllum.
Það eru margar ferðaskíðaleiðir í nágrenni skíðasvæða. Í þessari ferð ætlum við að skíða frá gönguskíðasvæði Bláfjalla og suður að Hlíðarenda, í átt að Þorlákshöfn. Við byrjum á að skilja bílana eftir á lokastað göngunnar áður en haldið er á upphafsstað göngunnar í Bláfjöllum, þar sem við spennum á okkur skíðin. Leiðin liggur fyrst um gönguskíðasvæði Bláfjalla en síðan er farið suðaustur yfir Heiðina há, um Guðrúnarbotna, meðfram Geitafelli, að Fálkakletti og síðan þjóðleiðina meðfram Búrfelli niður að Hlíðarenda. Skíðað: 16 km. Hækkun: 100m. Lækkun: 400m. Göngutími: um 6 klst.  

Brottför/Mæting
Kl. 09, hjá bílastæðinu við vatnsverksmiðjuna við Hlíðarenda
Fararstjórn

Bergur Pálsson og Agnes Ósk Sigmundardóttir 

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Fleiri skíðaferðir 2025

Gott að vita

Gott er að hafa með sér heitt á brúsa og gott nesti. Þátttakendur fá nánari upplýsingar og búnaðarlista í tölvupósti þegar nær dregur ferðinni, en þurfa að hafa til umráða ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum, skinn undir skíðin og skíðastafi. 

Mæting hjá Hlíðarenda kl. 09, sjá hér