Ferð: Borgarganga

Suðvesturland

Borgarganga

Á söguslóðum Reykjavíkurhafnar
Lýsing

Á undanförnum árum hefur Ferðafélag Íslands staðið fyrir borgargöngu í upphafi árs. Að þessu sinni verður gengið frá tónlistarhúsinu Hörpu í gegnum miðbæinn til vesturs að Ánanaustum og áfram út í Örfirisey. Skyggnst eftir minjum um þróun hafnarsvæðisins í Reykjavík frá ólíkum tímaskeiðum og staldrað við forvitnileg mannvirki sem verða á vegi gönguhópsins. Genginn verður 5-6 km hringur og endað á upphafsstað.

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.

Brottför/Mæting
Kl. 10:30 frá aðalinngangi Hörpu.
Fararstjórn

Pétur H. Ármannsson.

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Leiðarlýsing

Aðrar borgargöngur: Borgarganga úr Straumsvík.