Grænihryggur II
- Lýsing
Gönguferð á Grænahrygg og nánasta umhverfi. Þetta er ein fallegasta gönguleið landsins, svæðið er sannkölluð náttúruperla og er einstakt á heimsmælikvarða. Krefjandi ferð þar sem vaða þarf straumharða á nokkrum sinnum. Gengið um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Krefjandi ganga um einstaklega fjölbreytt og litríkt landslag
- Brottför/Mæting
- Mæting á einkabílum á upphafsstað göngu uppúr kl 10.00
- Fararstjórn
- Innifalið
- Farastjórn.
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Fróðleikur
Gott að vita:
- Ganga: 16-18 km.
- Hækkun: 800 m.
- Göngutími: 8-9 klst.
- Gott nesti og heitt á brúsa
- Taka með sér vaðskó
- Hér er Google slóð á upphafstað göngu: