Haustlitaferð í Þórsmörk
- Lýsing
Komdu með okkur í stórskemmtilega haustferð í ævintýraparadís Þórsmerkur þegar hún skartar sínum fallegu haustlitum. Þessi ferð er fyrir börn og fjölskyldur þeirra á öllum aldri. Ganga, útiveru, leikir, spil og ævintýrum. Ef við erum heppin sjáum við kannski rjúpur og og refi. Gist í skála og grillað saman. Tilvalin leið til að lengja sumarið og njóta haustsins á sama tíma. Sameiginleg grillmáltíð er ekki innifalinn í verði.
- Brottför/Mæting
- Kl. 15 með rútu frá Reykjavík
- Fararstjórn
- Innifalið
- Innifalið: Rúta, gisting og farastjórn
Búnaður
Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð
Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.
Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.
Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Í trússtöskunni
- Svefnpoki og lítill koddi
- Bolur til skiptana og til að sofa í
- Auka nærbuxur og sokkar
- Höfuðljós
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði
- Eyrnatappar
- Skálaskór
- Peningar
- Núðlur eða pasta í pokum
- Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
- Eitthvað gott á grillið
- Kol og uppkveikilögur
- Haframjöl
- Brauð og flatkökur
- Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna
- Tjald og tjalddýna
- Prímus og eldsneyti
- Eldspýtur
- Pottur
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Vasahnífur / skæri
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
Leiðarlýsing
1.d., föstud. Við komum okkur fyrir í skálanum í Langadal og förum í stutta göngu á Valahnúk, með höfuðljós. Að göngu lokinni eldum við saman og eigum notalega kvöldstund með samveru, spilum og leikjum.
Hækkun: 220 m. Göngutími: 1 klst.
2.d. Eftir morgunmat höldum við af stað í sjálfan Tindfjallahringinn. Gönguleiðin er þekkt fyrir fegurð sína og fjallasýn og er jafnvel fegurri í haustkápunni. Skoðum tröllakirkju og segjum tröllasögur. Leiðin er frekar brött á köflum og gæti verið áskorun fyrir mjög lofthrædda. Grill, leikir og kvöldvaka um kvöldið.
Ganga: 9,5 km Hækkun: 490 m. Göngutími: 6-7 klst.
3.d. Pökkum niður og göngum vel frá í skála. Góðar teygjur áður en haldið er í rólega göngu að Snorraríki. Rúta kemur og sækir hópinn um kl. 12.
Ganga: 3 km. Hækkun: 100 m. Göngutími: 1,5 klst.