Ferð: Helgafell

Suðurland

Helgafell

FÍ Unglingaferðir
Lýsing

Önnur unglinga-gangan er á Helgafell í Hafnarfirði. Helgafellið er 340 metra hátt en áætluð hækkun á göngu er um 250 metrar og vegalengd um 5 km. Lagt er af stað frá bílastæði við Kaldársel (við endann á Kaldárselsvegi) kl. 18 og áætlað er að gangan taki um 3 klst. Tilvalið er að taka með sér nesti sem hægt er að gæða sér á á toppnum.

Brottför/Mæting
Kl. 18:00 frá bílastæðinu við Kaldársel
Fararstjórn

Signý Harðardóttir

Innifalið
Fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Um ferðirnar

Gönguferðir fyrir 13 ára og eldri þar sem áhersla er á að njóta útverunnar á meðan gengið er í félagsskap annarra unglinga. Með því móti gefst tækifæri á aðra nálgun en þegar gengið er með yngri börnum. Tækifæri til að hitta aðra unglinga sem hafa áhuga á útivist.

Allar FÍ Unglingaferðir:

12. apríl - Mosfell

2. maí - Helgafell

22. maí - Reykjadalur

Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta, bara að mæta