Ferð: Helgafell Hafnarfirði

Suðvesturland

Helgafell Hafnarfirði

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar
Lýsing

Önnur gangan af sex í Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar. Helgafell er 340 metra hátt móbergsfjall og er það vinsæl gönguleið sem tölulega auðvelt uppgöngu að norðaustan, þó það sé annars klettótt og bratt.
Tilvalið að taka með gott nesti og borða kvöldmatinn á toppnum. Muna eftir nesti og góðum skóm. 2-3 klst.
Gangan er um 5 km og hækkunin um 250 m.


Þau sem ganga á öll fjöllin fá viðurkenningaskjal og titilinn
Fjallagarpur Ferðafélags barnanna.



Brottför/Mæting
Kl. 17 við bílastæðið rétt ofan við Kaldársel
Fararstjórn

Hrönn Vilhjálmsdóttir og Hörður Ingþór Harðarson

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar

Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta,
bara mæta!