Ferð: Haustlitaferð í Búrfellsgjá

Suðvesturland

Haustlitaferð í Búrfellsgjá

Með fróðleik í fararnesti
Lýsing

Vísindafólk frá Háskóla Íslands mun leiða göngu um Búrfellsgjá í Heiðmörk. Við ætlum að skoða plöntur og fræðast um útbreiðslu þeirra og hvernig landið á svæðinu mótaðist í eldsumbrotum. Mikilvægt er að klæða sig vel, vera í góðum skóm og taka með gott nesti.

Hluti af „Með fróðleik í  fararnesti,“ verkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands sem hlaut vísindaverðlaun Rannís 2023

Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis. Ekkert að panta, bara mæta!

Brottför/Mæting
Kl. 12 frá bílstæðinu við Búrfellsgjá.

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Fróðleikur

Með fróðleik í  fararnesti,“ verkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands sem hlaut vísindaverðlaun Rannís 2023

Með fróðleik í fararnesti

Nánari upplýsingar síðar á Fésbók og heimasíðu FÍ og HÍ.

"Með fróðleik í  fararnesti,“ verkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands sem hlaut vísindaverðlaun Rannís 2023