Leggjabrjótur
- Lýsing
Leggjabrjótur á ferðaskíðum
Ferðaskíðaferð um þessa skemmtilegu þjóðleið milli Þingvalla og Hvalfjarðar.
Margir hafa farið leiðina að sumri eða hausti en förum við hana síðla vetrar á ferðaskíðum. Leiðin er fyrst á fótinn en síðan nokkuð flöt þar til við lækkum okkur niður í Hvalfjörðinn. Þar er eins víst að skíðin verð tekin af og gengið með þau á köflum. Þessi ferð er svolítið meiri áskorun en fyrri ferðir vetrarins, meiri hækkun og lækkun.
Skíðað: 19 km. Heildar hækkun: um 620 m/ Lækkun: 540 m- Brottför/Mæting
- Kl. 8:30 með rútu frá Reykjavík.
- Fararstjórn
- Innifalið
- Rúta og fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Fleiri skíðaferðir 2025
- 18.janúar, Marardalur – Ferðaskíði
- 2.febrúar, Mosfellsheiði - Litla Kaffistofan – Ferðaskíði
- 16.febrúar, Þingvellir – Ferðaskíði
- 2.mars, Bláfjöll - Hlíðarendi – Ferðaskíði
- 15.- 16. mars, Ferðaskíði og tjald, í nágrenni Reykjavíkur
- 6.apríl, Leggjarbrjótur á ferðaskíðum
- 12.apríl, Ármannsfell - Fjallaskíði
- 26.apríl, Eyjafjallajökull, Fjallaskíði
- 3.maí, Tindfjallajökulshringur, Fjallaskíði
- 17.maí, Hvannadalshnúkur & Rótarfellshnjúkur -Fjallaskíði
Gott að vita:
Gott er að hafa með sér heitt á brúsa og gott nesti. Þátttakendur fá nánari upplýsingar og búnaðarlista í tölvupósti þegar nær dregur ferðinni, en þurfa að hafa til umráða ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum, skinn undir skíðin og skíðastafi.