Mosfellsheiði - Litla Kaffistofa
- Lýsing
Ekið á einkabílum að Litlu Kaffistofunni þar sem rútan bíður og ekur okkur á upphafsstað göngunnar sem er skammt frá Litla Sauðafelli við veginn til Þingvalla.
Tiltölulega þægilegt ferðalag sem hentar flestum getustigum enda er skíðað um frekar slétt landslag. Farið er um heiðar og hraun, hæðir og lægðir.
Á Mosfellsheiði þverum við gömlu þjóðleiðina til Þingvalla, komum við hjá sæluhúsi sem Ferðafélag Íslands hefur endurbyggt og rifjum upp frásögn úr Hrakningum á heiðarvegum sem tengjast svæðinu.
Skíðað: 25 km. Um 8 klst.- Brottför/Mæting
- Kl. 8:30 með rútu frá Litlu Kaffistofunni.
- Fararstjórn
- Innifalið
- Rúta og fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Fleiri skíðaferðir 2025
- 18.janúar, Marardalur – Ferðaskíði
- 16.febrúar, Þingvellir – Ferðaskíði
- 2.mars, Bláfjöll - Hlíðarendi – Ferðaskíði
- 15.- 16. mars, Ferðaskíði og tjald, í nágrenni Reykjavíkur
- 6.apríl, Leggjarbrjótur á ferðaskíðum
- 12.apríl, Ármannsfell - Fjallaskíði
- 26.apríl, Eyjafjallajökull, Fjallaskíði
- 3.maí, Tindfjallajökulshringur, Fjallaskíði
- 17.maí, Hvannadalshnúkur & Rótarfellshnjúkur -Fjallaskíði
Gott að vita:
Gott er að hafa með sér heitt á brúsa og gott nesti. Þátttakendur fá nánari upplýsingar og búnaðarlista í tölvupósti þegar nær dregur ferðinni, en þurfa að hafa til umráða ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum, skinn undir skíðin og skíðastafi.
Rúta bíður hópsins hjá Litlu Kaffistofunni: sjá hér