Hvaleyrarvatn og Höfðaskógur
- Lýsing
Gangan hefst við bílastæðið suðvestan við Hvaleyrarvatn. Gengið er inn og austur með vatninu upp í skógræktarsvæðið í Höfðaskógi. Farið er upp á Húshöfða og skógarstígum fylgt eftir norðurhlíð Kjóadalshálsins áður en farið er upp á Selhöfða. Þaðan er haldið til baka að upphafsstað. Göngutími: 1,5-2,0 tímar
Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis.
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Örgöngur í Hafnarfirði og nágrenni
- 7. maí, Vestan Lækjar
- 14. maí, Stekkjahraun og Lækjarbotnar
- 21. maí, Ásfjall og Ástjörn
- 13. september, Helgadalur, Valaból og Valahnúkar