Reykjarfjörður – Þaralátursfjörður - Geirólfsgnúpur
- Lýsing
Viltu uppgötva undur Stranda sem á sér vart hliðstæðu? Viltu heyra spennandi sögur af svæðinu og fá nasasjón af menningu og löngu horfnu mannlífi? Viltu njóta fuglalífs og fegurðar í óspilltri náttúru? Þetta er allt hægt í bækistöðvarferð þar sem siglt er í hinn dásamlega Reykjarfjörð á Ströndum og gist í þrjár nætur í svefnpokum í góðu og upphituðu húsi. Gengið er um í góðum félagsskap um ævintýraveröld með léttar byrðar á daginn og látið líða úr sér í heitri laug og potti á kvöldin. Ferðin hentar einkar vel þeim sem vilja léttari göngur í einstaklega fallegri náttúru þar sem skiptast á víðerni og yfirgefnar byggðir. Sameiginlegur matur er ekki innifalinn í verði.
- Brottför/Mæting
- Fyrir kl. 18 á einkabílum að Valgeirsstöðum í Norðurfirði.
- Fararstjórn
- Innifalið
- Sigling, gisting, söguganga og fararstjórn.
Búnaður
Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð
Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.
Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.
Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Í trússtöskunni
- Svefnpoki og lítill koddi
- Bolur til skiptana og til að sofa í
- Auka nærbuxur og sokkar
- Höfuðljós
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði
- Eyrnatappar
- Skálaskór
- Peningar
- Núðlur eða pasta í pokum
- Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
- Eitthvað gott á grillið
- Kol og uppkveikilögur
- Haframjöl
- Brauð og flatkökur
- Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna
- Tjald og tjalddýna
- Prímus og eldsneyti
- Eldspýtur
- Pottur
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Vasahnífur / skæri
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
Fróðleikur
Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.
Leiðarlýsing
1.d., miðvikud. Þátttakendur koma að Valgeirsstöðum þar sem gist er fyrstu nóttina. Um kvöldið er hægt að þræða fjöruna eða jafnvel ganga á Reykjaneshyrnu.
2.d. Að morgni dags er siglt frá Norðurfirði í Reykjarfjörð. Eftir að hópurinn hefur komið sér fyrir í Gamla bænum er farið í létta sögugöngu um svæðið undir leiðsögn heimafólks og fjaran svo gengin að Reykjafjarðarósnum og til baka. Ganga: 8 km. Heildarhækkun: 35 m.
3.d. Gengið á Hánes (280 m) en af því er gríðarlegt útsýni suður og norður Strandir, niður í Þaralátursfjörð, Furðfjörð og til Kálfatinda. Af nesinu er gengið niður í hinn ægifagra Þaralátursfjörð. Haldið er á Hvítsanda og gatan þrædd til baka yfir í Reykjarfjörð. Ganga: 10,5 km. Heildarhækkun: 375 m.
4.d. Ef skyggni og vatnsstaða í Reykjarfjarðarósnum leyfir er gengið á hinn magnaða Geirólfsgnúp (433 m). Af honum er ólýsanlega fagurt útsýni til allra átta. Ef ekki er fært á gnúpinn er haldið inn með Reykjafjarðarósnum í átt að Drangajökli og til baka. Ganga á Geirólfsgnúp: 14,5 km. Heildarhækkun: 520 m.
5.d. Frágangur í húsi og létt morgunganga í fjörunni ef tími vinnst til áður en siglt er til baka í Norðurfjörð.
Vinsamlegast athugið að í þessari ferð getur gangan á Geirólfsgnúp færst til milli daga með hliðsjón af veðri, skyggni og vatnshæð í jökulánni.
Fleiri ferðir á Strandir sumarið 2025
- 3.- 7. júlí. Draumfagra Drangavík
- 17.-20. júlí. Ævintýri á Ströndum Ferðafélag barnanna
- 23. - 29. júlí. Norðurstrandir - á slóðum útilegu- og galdramanna
- 8. -11. ágúst. Undur Árneshrepps
- 15. -17. ágúst. Hjólaferð: Árneshreppur á Ströndum
- 21. -24. ágúst. Á Ströndum með gleði í hjarta