Ferð: Sogin, Spákonuvatn og Grænavatn

Suðvesturland

Sogin, Spákonuvatn og Grænavatn

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar
Lýsing

Sjötta og síðasta gangan í Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar. Fjölbreytt ganga um lítríkt og skemmtilegt umhverfi þar sem ævintýrin bíða okkar. Gangan: um 6 km. Hækkun um 400 m. Þau sem ganga á öll fjöllin fá viðurkenningaskjal og titilinn Fjallagarpur Ferðafélags barnanna.  Muna eftir nesti og góðum skóm. 4-5 klst.

Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta, bara mæta!

Brottför/Mæting
Kl. 10 frá Lækjarskóla Hafnarfirði.
Fararstjórn

Hrönn Vilhjálmsdóttir og Hörður Ingþór Harðarson.

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar

Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta, bara mæta!