Undur Árneshrepps
- Lýsing
Síldarverksmiðjurnar í Ingólfsfirði og í Djúpuvík. Fossarnir í Ófeigsfirði og sandfjaran í Norðurfirði.
Galdramenn og draugar. Sjósund og stuttar gönguferðir. Allt þetta og meira til í þessari ferð.
Árneshreppur á Ströndum er afskekkt og víðfeðmt sveitarfélag við ysta haf. Þar hefur fólk lifað af hlunnindum lands og sjávar um aldir. Árneshreppur er fámennasta sveitarfélagið á Íslandi. Landslagið á svæðinu er ægifagurt og hefur mikið aðdráttarafl. Einnig státar sveitarfélagið af einni vinsælustu sundlaug landsins, Krossneslaug. Það jafnast ekkert á við að láta þreytuna líða úr sér þar eftir góða fjallgöngu og hlusta á sjávarniðinn í fjöruborðinu.
Gist í skála Ferðafélags Íslands á Valgeirstöðum. Fræðsla og skemmtun að kveldi. Ferðin er átakalítil og lagt upp með að segja sögu svæðisins. Sameiginlegt grill ekki innifalið í verði.- Brottför/Mæting
- Kl. 18 á einkabílum á Valgeirsstöðum
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð
Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.
Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.
Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Í trússtöskunni
- Svefnpoki og lítill koddi
- Bolur til skiptana og til að sofa í
- Auka nærbuxur og sokkar
- Höfuðljós
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði
- Eyrnatappar
- Skálaskór
- Peningar
- Núðlur eða pasta í pokum
- Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
- Eitthvað gott á grillið
- Kol og uppkveikilögur
- Haframjöl
- Brauð og flatkökur
- Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna
- Tjald og tjalddýna
- Prímus og eldsneyti
- Eldspýtur
- Pottur
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Vasahnífur / skæri
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
Fróðleikur
Leiðarlýsing
1.d., föstud. Mæting kl.18 á Valgeirsstöðum. Stutt ganga í litla þorpið í Norðurfirði um kvöldið.
2.d. Kistuvogur um Galdrastíg. Kirkjurnar tvær heimsóttar og komið við í byggðasafninu
Kört. Sjóbað í Norðurfirði og svo sund í Krossneslaug.
3.d. Eyri við Ingólfsfjörð heimsótt. Ekið í Ófeigsfjörð. Stutt ganga upp að Húsárfossi.
Sjóbað og grill að kveldi. Sögur undir svefninn. Draugurinn með bílprófið.
4.d. Heimferð. Lagt af stað kl. 10 frá Valgeirsstöðum. Komið við í Djúpuvík.
Baskasafnið og verksmiðjan skoðuð. Kveðjustund kl. 12.30 í súpu og köku á Hótel
Djúpuvík.
Fleiri ferðir á Strandir sumarið 2025
- 3.- 7. júlí. Draumfagra Drangavík
- 9. -13. júlí. Reykjarfjörður – Þaralátursfjörður – Geirólfsgnúpur
- 17.-20. júlí. Ævintýri á Ströndum Ferðafélag barnanna
- 23. - 29. júlí. Norðurstrandir - á slóðum útilegu- og galdramanna
- 15. -17. ágúst. Hjólaferð: Árneshreppur á Ströndum
- 21. -24. ágúst. Á Ströndum með gleði í hjarta