FÍ Fjallatindar er verkefni hannað sérstaklega með Hvannadalshnúk í huga. Það spannar 20 vikur sem munu fara í undirbúning fyrir þessa skemmtilegu en jafnframt krefjandi göngu. Við munum læra göngutækni, broddanotkun og öndun, hvernig á að klæða sig og hvað skal borða ásamt mörgu öðru sem kemur sér vel að kunna í fjallgöngum. Á þessum 20 vikum göngum við á hin ýmsu fjöll í kringum höfuðborgarsvæðið, allt frá stuttum og lágum til lengri og hærri, allt með hnúkinn fagra í huga. Þetta er frábært verkefni fyrir þá sem hafa dreymt um að fara á hnúkinn. Nú er tækifæri til að breyta þeim draumum í veruleika!
Umsjón: Tomasz Þór Veruson.
Kynningarfundur 20. janúar kl. 20.
Verð: 73.900 árgjald FÍ 2021 innifalið.
* Mögulega gerð krafa um jöklabrodda og ísexi
** Jöklabúnaður (broddar, exi, belti og karabína) skylda
Ferðafélag Íslands áskilur sér rétt til að breyta, fresta eða endurskipuleggja dagskrá fjallaverkefna félagsins vegna sóttvarnarfyrirmæla í tengslum við Covid 19 eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.
Tryggingar: Ferðafélag Íslands tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar fyrir ferðir.