Kvennakraftur er gönguverkefni ætlað byrjendum og þeim konum sem vilja ganga í góðum félagsskap án þess að fara hratt yfir. Hér er áherslan á að njóta fremur en að þjóta. Náttúruperlur í nágrenni Höfuðborgarsvæðisins eru margar og ætlum við að skoða nokkrar vel valdar perlur. Allir áfangastaðir eru í innanvið 40 mín akstursfjarlægð.
Gengið verður annað hvort þriðjudagsköld og annan hvorn laugadag í sömu vikunni, og frí í hinni vikunni. Verkefnið byrjar í byrjun sept og lýkur í byrjun des. Myndir úr verkefninu.
Umsjón: Agnes Ósk Sigmundardóttir og Steinunn Leifsdóttir
Smellið hér til að horfa á upplýsinga- og kynningarfundinn sem var 24. ágúst
Verð: 64.000 fyrir félagsfólk FÍ.
Verð: 72.500 árgjald FÍ 2023 innifalið í verði.
Allir þátttakendur þurfa að greiða árgjald 2023 til að taka þátt í verkefninu og makar greiða hálft árgjald.
Dagsetning | Dagur | Tími | Áfangastaður | Lengd / hækkun |
9.sept | Laugardagur | 10:00 | Þyrill | 8 km / 390 m |
12.sept | Þriðjudagur | 18:00 | Búrfellsgjá | 5.5 km / 120 m |
23. sept | Laugardagur | 10:00 | Stóra Skógfell & Sýlingarfell | 9 km / 200 m |
3. okt | Þriðjudagur | 18:00 | Sandfell í Kjós | 4 km / 200 m |
7. okt | Helgaferð | Vestmanneyjar */ ** | ||
17. okt | Þriðjudagur | 18:00 | Sköflungur | 6 km / 300 m |
21. okt | Laugardagur | 10:00 | Eldvörp | 11 km / 100 m |
31. okt | Þriðjudagur | 18:00 | Helgafell í Hfj | 6 km / 300 m |
4. nóv | Laugardagur | 10:00 | Brynjudalur | 9 km / 200 m |
14. nóv | Þriðjudagur | 18:00 | Reykjaborg og Lali | 5 km / 250 m |
18. nóv | Laugardagur | 10:00 | Grímannsfell - Hjálmur | 6 km / 300 m |
28. nóv | Þriðjudagur | 18:00 | Hólmsheiði | 9 km / 200 m |
2. des | Laugardagur | 10:00 | Langihryggur og Stóri Hrútur | 10 km / 300 m |
* Rúta / sigling greiðist aukalega
** Gisting greiðist aukalega
Ferðafélag Íslands áskilur sér rétt til að breyta, fresta eða endurskipuleggja dagskrá fjallaverkefna félagsins vegna sóttvarnarfyrirmæla í tengslum við Covid 19 eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka.
Afbókunarskilmálar fyrir fjalla-og hreyfiverkefni:
Tryggingar: Ferðafélag Íslands tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar fyrir ferðir.
Birting myndefnis:
Þátttakendur í ferðum og námskeiðum FÍ samþykkja með þátttöku sinni að félaginu sé heimilt að taka myndir eða myndbönd af þátttakendum og nota í birtingu á heimasíðu, samfélagsmiðlum og prentmiðlum. Þátttakandi getur ávallt hafnað birtingu myndefnis af sér með því að senda póst á fi@fi.is.
Lámarks þátttaka : 20 manns
SMELLTU Á MYND TIL AÐ BÓKA