Ferð: Draumfagra Drangavík

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Strandir

Draumfagra Drangavík

Lýsing

Í þessari ferð er haldið til í skála Ferðafélags Íslands í Norðurfirði. Við göngum á Glissu, eitt magnaðasta fjall Íslands, og heimsækjum Drangavík sem margir telja vera fegurstu vík Íslands. Við njótum þess að komast í beina snertingu við Drangaskörð sem margir þekkja.
Landslagið á svæðinu er ægifagurt og hefur mikið aðdráttarafl. Sveitarfélagið státar af einni vinsælustu sundlaug landsins, Krossneslaug. Það jafnast ekkert á við að láta þreytuna líða úr sér þar eftir góða fjallgöngu og hlusta á sjávarniðinn í fjöruborðinu. Sameiginlegt grill ekki innifalið í verði.

Brottför/Mæting
Kl. 18 á Valgeirsstöðum
Fararstjórn

Reynir Traustason og Guðrún Gunnsteinsdóttir

Innifalið
Gisting, sigling, aðgangur að Kört, aðgangur síldarverksmiðjunni, hádegisverður á Hótel Djúpuvík og fararstjórn.  

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Fróðleikur

        

Síðustu galdrabrennur á Íslandi

Árneshreppur er nyrsta byggð á Ströndum. Samfélagið lifir að mestu á landbúnaði eins og um aldir. Ferðamannastraumurinn ógurlegi hefur ekki náð þangað nema að litlu marki. Flest er eins og það áður var.

Kaffi Norðurfjörður er veitingastaður sem rómaður er af þeim sem notrið hafa veitinga. Sundlaugin í Krossnesi stendur í fjöruborðinu og er fyrir löngu heimsþekkt. Gesturinn horfir út á hafið á milli sundspretta þar sem sjá má öldur brotna á óveðursdögum. Þegar lyngt er má spegla sig í haffletinum.

Heimsókn í Kistuvog er áhrifarík. Þar áttu sér stað síðustu galdrabrennur á Íslandi þegar nokkrir menn voru settir á bálið fyrir að leggja álög á konur í byggðarlaginu með þeim afleiðingum að þær misstu ráð og rænu um tíma. En það urðu ekki allir eldinum að bráð.

Árneshreppur er rammaður inn af fallegum fjöllum sem hvert og eitt veita skemmtilega upplifun. Örkin er eitt þeirra fjalla sem gengið verður á í ferðinni. Fjallið sækir að líkindum nafn sitt í Biblíuna og er jarðfræðilega á meðal elstu fjalla landsins eða 11 milljón ára. Þaðan er frábært útsýni, allt að Hornbjargi í norðri. Og það vekur sterkar tilfinningar að hugsa um Nóa og Örkina þar sem maður stendur á Arkartindi.

Heimsókn í Árneshrepp er ávísun á ljúfa daga í ystu byggð. Þarna er að finna gamla Ísland í sinni fegurstu mynd.

Leiðarlýsing

1.d.,fimmtud. Mæting: Kl. 18 á Valgeirsstöðum. Kl. 19.30, stutt ganga um fjörðinn.

2.d.
Gengið á Glissu. Sjóbað og sund. Grillum saman um kvöldið. Ganga: 10 km.

3.d.
Siglt með Strandferðum í Drangavík. Gengið fyrir hin ægifögru Drangaskörð heim að Dröngum. Þaðan verður siglt aftur til Norðurfjarðar að göngu lokinni. Ganga: 11 km. Hækkun: um 150 m.

4.d.
Gengið á Reykjaneshyrnu, komið við í Kistuvogi. Kirkjurnar tvær og Kört heimsótt.

5.d.
Heimferð. Lagt af stað kl.10. Komið við í Djúpuvík og verksmiðjan skoðuð.  Kveðjustund kl. 12.30 í súpu, kaffi og köku á Hótel Djúpuvík.

Fleiri ferðir á Strandir sumarið 2025