Eiríksjökull
- Lýsing
Eiríksjökull (1675m) er geysistór, jökulkrýndur móbergsstapi og er hæsta fjall Vesturlands. Hann þykir með fallegri fjöllum á Íslandi.
Ekið er um grófan og seinfarinn veg til að komast að upphafsstað göngunnar. Gengið er um hraun og skriður þar til komið er að jöklinum. Ganga: 32 km. Hækkun: 1300 m. Göngutími: 14 klst.Í þessari ferð verður gengið á einn af hundrað hæstu tindum landsins. Sjá nánar .
- Brottför/Mæting
- Kl. 8:30 frá þjónustumiðstöðinni í Húsafelli. Þaðan ekið á jeppum inn með Strút þar sem gangan hefst.
- Fararstjórn
- Innifalið
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð á jökli
Ísland liggur við heimskautsbaug og alltaf má búast við vondum veðrum, sér í lagi þegar ferðast er á há fjöll eða jökla. Jafnframt krefjast jöklaferðir margvíslegs öryggisbúnaðar og því er dagpoki jöklaferðalangs töluvert þyngri en þegar gengið er á lægri fjöll utan jökla.
Athugið að enginn skyldi ferðast einn á jökli. Á sprungusvæðum jökla þarf að ganga í línu og lágmarkið er þrír í línu. Aðeins þeir sem hafa góða þekkingu á sprungubjörgun ættu að ferðast án fararstjóra á jökli.
Listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir uppháir gönguskór úr leðri eða stífir jöklaskór
- Mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís
- Peysa úr ull, flís eða mjúkskel
- Göngubuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi. Nauðsynlegt er að taka nóg af vatni þegar ferðast er lengi á jökli
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar
Öryggisbúnaður
- Belti með karabínu
- Jöklabroddar sem búið er að stilla á gönguskóna
- Ísöxi
- Jöklalína (hjá fararstjóra)
- Sprungubjörgunarbúnaður (hjá fararstjóra)
- Snjóflóðaýlir, snjóflóðastöng og skófla ef ferðast er um möguleg snjóflóðasvæði
Ef fjallaskíðaferð
- Fjallaskíði og stafir
- Skíðahjálmur
- Skinn undir skíðin
- Broddar undir skíðin
Fróðleikur
Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.
Gott að vita:
- Ganga: 32 km.
- Hækkun 1300 m
- Göngutími: 14 klst