Elliðaárdalur
- Lýsing
Fyrsta ganga ársins er á hinu stórkostlega útivistarsvæði sem Elliðaárdalur skartar. Elliðaárdalur er stærsta græna svæði borgarinnar og býður upp á fjölbreytt umhverfi þar sem Elliðaárnar eru þungamiðja svæðisins. Ganga 7,5 km og hækkun 100m.
Ókeypis er í göngurnar og allir velkomnir en
nauðsynlegt er að skrá sig- Brottför/Mæting
- kl. 09:30 við Hitt húsið Rafstöðvarvegur 7-9
- Fararstjórn
Ingibjörg Jónsdóttir og Hildur Björk Guðmundsdóttir
- Innifalið
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Um prjónagöngur
Langar þig að koma út að ganga með prjónana í bakpokanum?
Þá eru þetta göngur fyrir þig.
Við ætlum að fara eina létta prjónagöngu í mánuði á höfuðborgasvæðinu og í nágrenni þess fram í apríl.
Hvetjum alla sem hafa þetta áhugamál til að koma og taka þátt og einnig þá sem hafa áhuga að læra að prjóna.
Fleiri prjónagöngur 2025
- 8.febrúar. Sandgerði - Hvalsneskirkja – prjónagang
- 6.mars. Búrfell og Búrfellsgjá – prjónaganga
- 10. apríl. Tröllafoss í Mosfellsdal – Prjónaganga
- 20.–23. júlí. Garn, prjón og gönguskór
Fyrstu mánuðina leggjum við áherslu á að geta sest inn á kaffihús í lok göngunnar með prjónana. Að sjálfsögðu ætlum við ef veður leyfir að setjast niður í göngunum og prjóna en eigum þá alltaf kaffihúsið í bakhöndinni ef aðstæður bjóða ekki upp á að prjóna úti.
Kaffihús mánaðarins: Á Bistro
Klæðum okkur eftir veðri, góða gönguskó, keðjubrodda, höfuðljós og að sjálfsögðu eru prjónarnir teknir með. Gott er að hafa heitt á brúsa og smá nasl með í bakpokanum.
Upphafsstaður göngunnar. Sjá hér