Ferð: Grænihryggur I

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Hálendið

Grænihryggur I

Lýsing

Gönguferð á Grænahrygg og nánasta umhverfi. Þetta er ein fallegasta gönguleið landsins, svæðið er sannkölluð náttúruperla og er einstakt á heimsmælikvarða. Krefjandi ferð þar sem vaða þarf straumharða á nokkrum sinnum.  Gengið um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Krefjandi ganga um einstaklega fjölbreytt og litríkt landslag.

Brottför/Mæting
Mæting á einkabílum á upphafsstað göngu uppúr kl 10.00
Fararstjórn

Bjarni Már Gylfason

Innifalið
Farastjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Fróðleikur

Gott að vita:

  • Ganga: 16-18 km.
  • Hækkun: 800 m.
  • Göngutími: 8-9 klst.
  • Gott nesti og heitt á brúsa
  • Taka með sér vaðskó
  • Hér er Google slóð á upphafstað göngu:

    https://goo.gl/maps/393PTT7z9Kj5t7Qw5