Ferð: Grunnavík, Jökulfirðir og Snæfjallaströnd

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Vestfirðir

Grunnavík, Jökulfirðir og Snæfjallaströnd

Söguganga í sumarlandi Jökulfjarða og Ísafjarðardjúps
Lýsing

Viltu upplifa magnaða fegurð Jökulfjarða og Snæfjallastrandar og uppgötva undur Hornstranda án þess að bera miklar byrðar í bakpokanum?
Viltu heyra spennandi sögur af svæðinu sem gengið er um og fá nasasjón af menningu og löngu horfnu mannlífi? Í þessari ferð verður hugað að ótrúlegum atburðum úr sögu svæðisins, menningu og mannlífi í nokkuð víðtækum skilningi og fjallað um skáldskap sem tengist svæðinu. Algerlega magnaðar sögur tengjast Grunnavík, einum af síðustu þéttbýlisstöðum Jökulfjarða/Hornstranda. Þar fæddust og bjuggu nokkrar lykilpersónur og leikendur í Íslandssögunni. Gamla póstleiðin yfir Snæfjallaheiði er vafalítið kveikjan að atburðum í skáldskap Jóns Kalmans í sagnabálkinum um Himnaríki og helvíti. 

Grunnavík er líka sviðið í mörgum spennandi atburðum sagnabálksins. Gengið er með léttan dagpoka. Þátttakendur koma til Ísafjarðar/Bolungarvíkur fimmtudaginn 17. júlí og gista þar á eigin vegum.

Sameiginlegur matur sem ekki er innifalinn í fargjaldi verður fluttur á gististaðinn.

Brottför/Mæting
Kl. 8:30 á bryggjuna í Bolungarvík. Brottför kl. 9.
Fararstjórn

 Jón Örn Guðbjartsson

Innifalið
Sigling, trúss, gisting, og fararstjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Fróðleikur

   

Leiðarlýsing

1.d.,föstud. Siglt að morgni 18. júlí í Grunnavík þar sem farangur og vistir eru fluttar í land. Áfram er svo siglt að Höfðaströnd þar sem gönguhópurinn fer í land með léttan dagpoka. Þaðan er svo gengið yfir lága heiði til Grunnavíkur. Farangurinn er gripinn við steinbryggjuna þegar komið er niður í víkina og hann fluttur að gististaðnum. Gist er í hinu fræga býli Sútarabúðum í upphituðu húsi. Ganga: 14 km. Heildarhækkun: 180 m.

2.d. Farið í létta gönguferð út með víkinni að tveimur eyðibýlum og hugað að búskaparháttum og atvinnu á síðustu öld. Síðdegis er gengið út með víkinni og eftir hlíðum Maríuhorns þar sem við litumst um eftir heimskautarefnum. Ganga:11 km. Heildarhækkun: 25 m.

3.d. Gengið á Maríuhorn (350 m)en þaðan er gríðarlegt útsýni inn eftir Jökulfjörðum og út á Djúp. Komið er við á prestsetrinu að Stað þar sem raktar verða sögur þess og kirkjan skoðuð. Ganga: 8,5 km. Heildarhækkun: 390 m.

4.d. Gengið frá húsi og farangri sem verður sóttur að steinbryggjunni. Gengið yfir Snæfjallaheiði (455 m) með dagpoka, hina gömlu og háu og sögufrægu póstleið að Berjadalsá/Sandeyri á Snæfjallaströnd. Þaðan er svo siglt aftur til Bolungarvíkur síðdegis. Ganga: 17 km. Heildarhækkun: 650 m.

Vinsamlegast athugið að í þessari ferð getur gangan á Maríuhorn færst til milli daga með hliðsjón af veðri og skyggni. 

Fleiri ferðir á Hornstrandir sumarið 2025