Konfektmolar við Arnarfjörð
- Lýsing
Arnarfjörður er annar stærsti fjörðurinn á Vestfjörðum eftir Ísafjarðardjúpi, um 30 km langur. Inn úr honum skerast nokkrir minni firðir og dalir eins og Ketildalir. Sæbrött hamrafjöll liggja að firðinum yst einkum að norðan og víða er undirlendi lítið. Í innfjörðum Arnarfjarðar er víða mikil veðursæld þar sem þeir eru umkringdir háum fjöllum og víða vaxnir birkikjarri. Arnarfjörður var þéttbyggður hér fyrr á öldum en nú eru einungis örfáir bæir eftir í byggð. Í þessari ferð munum við slá upp tjaldbúðum til þriggja nátta í Selárdal, 25 km frá Bíldudal. Hvalaskoðun er ekki innifalið í verði ferðar.
- Brottför/Mæting
- Mæting á eigin bíl á fimmtudagskvöldi við safn Samúels Jónssonar í Selárdal.
- Fararstjórn
- Innifalið
- Tjaldgisting, rúta og fararstjórn.
Búnaður
Pakkað fyrir bakpokaferð
Þegar gengið er með allt á bakinu er nauðsynlegt að skera útbúnað niður eins og hægt er, án þess að sleppa nauðsynjum. Hafið bakpokann ekki þyngri en þið treystið ykkur til að bera. Hæfileg þyngd fer eftir líkamsástandi hvers og eins en oft er miðað við að bakpoki skuli ekki vera þyngri en 15-20% af líkamsþynd þess sem ber hann.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála, þá má í flestum skálum Ferðafélags Íslands finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis/kamars með klósettpappír.
Ýmislegt
- Bakpoki, ekki of stór
- Svefnpoki, léttur og hlýr
- Bakpokahlíf / plastpokar inn í bakpokann
- Tjald og tjalddýna
- Göngustafir
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Höfuðljós
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Broddar, ef þurfa þykir
- Peningar
Snyrtivörur / sjúkravörur
- Hælsærisplástur, plástur og teygjubindi
- Verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði / þvottapoki
- Sólvarnarkrem og varasalvi
- Eyrnatappar
Mataráhöld / eldunartæki
- Prímus, eldsneyti og pottur
- Eldspýtur
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Vasahnífur / skæri
Fatnaður
- Góðir gönguskór
- Vaðskór / skálaskór
- Tvö pör mjúkir göngusokkar
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Nærbuxur til skiptana
- Nærföt, ull eða flís
- Flís- eða ullarpeysa
- Millilag úr ull eða flís
- Göngubuxur
- Stuttbuxur
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar
Matur
- Frostþurrkaður matur
- Núðlur eða pasta í pokum
- Haframjöl
- Smurt brauð og flatkökur
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Leiðarlýsing
1.d.,föstud. Ekið frá Selárdal að Dynjanda og fossinn skoðaður. Síðan er haldið eftir jeppavegi norðan megin Arnarfjarðar að Fossadal. Gengið á Kaldbak (999 m) hæsta fjall Vestfjarða. Eftir gönguna er ekið á fjöru út að Lokinhömrum og Svalvogum, þar sem farið er í styttri göngur. Ekið heim eftir hinni frægu Kjaransbraut að Þingeyri. Á leiðinni heim í Selárdal er komið við í náttúrulauginni í Reykjafirði. Þar er boðið upp á jóga en síðan tekur við kvöldvaka í Selárdal með bálkesti og sjósundi fyrir þau sem vilja. Ganga: 10 km. Hækkun: um 1000 m
2.d. Safn Samúels Jónssonar og Uppsalir skoðaðir. Gengið yfir Selárdalsheiði í Tálknafjörð – gamla og stórfenglega þjóðleið sem tekur daginn. Á leiðinni er komið við í Stapavík með útsýni að Tálkna. Eftir gönguna skellum við okkur í sjóðheitan Pollinn, þar sem einnig má skella sér í sjósund. Rúta ekur hópnum aftur í Selárdal. Á leiðinni heim er stoppað á Vegamótum þar sem við snæðum kvöldverð. Ef veður leyfir er hægt að skella sér í Hvalaskoðun. Ganga: 16 km. Hækkun: um 800 m
3.d. Gengið út í Verdali, “Versali Vestfjarða” - nyrst í Ketildölum. Á leiðinni heim er gengið inn Austmannsdal meðfram fallegum fossum, og upp á Haugshorn, einn besta útsýnisstað við Arnarfjörð. Komið við í Hringsdal þar sem víkingurinn Hringur var heygður, áður en haldið er heim í gegnum Bíldudal. Ganga: 7 km . Hækkun: um 500 m