Ferð: Leggjabrjótur

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Suðvesturland

Leggjabrjótur

á ferðaskíðum
Lýsing

Leggjabrjótur á ferðaskíðum

Ferðaskíðaferð um þessa skemmtilegu þjóðleið milli Þingvalla og Hvalfjarðar.  
Margir hafa farið leiðina að sumri eða hausti en förum við hana síðla vetrar á ferðaskíðum.  Leiðin er fyrst á fótinn en síðan nokkuð flöt þar til við lækkum okkur niður í Hvalfjörðinn. Þar er eins víst að skíðin verð tekin af og gengið með þau á köflum. Þessi ferð er svolítið meiri áskorun en fyrri ferðir vetrarins, meiri hækkun og lækkun.
Skíðað: 19 km. Heildar hækkun: um 620 m/ Lækkun: 540 m

Brottför/Mæting
Kl. 8:30 með rútu frá Reykjavík. 
Fararstjórn

Bergur Pálsson og Agnes Ósk Sigmundardóttir 

Innifalið
Rúta og fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Fleiri skíðaferðir 2025

Gott að vita:

Gott er að hafa með sér heitt á brúsa og gott nesti. Þátttakendur fá nánari upplýsingar og búnaðarlista í tölvupósti þegar nær dregur ferðinni, en þurfa að hafa til umráða ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum, skinn undir skíðin og skíðastafi.