Ferð: Helgafell ofan Hafnarfjarðar

Suðvesturland

Helgafell ofan Hafnarfjarðar

Morgungöngur
Lýsing

Morgungönguvika FÍ dagana 5.-9. maí.
Á fjöll við fyrsta hanagal

Komdu sjálfum þér á óvart með göngu í morgunsárið og fylltu lungun af fjallalofti fyrir verkefni dagsins. Fjallaskáld Ferðafélags Íslands 2025 verður með í för og les úr verkum sínum.
Göngurnar taka 2-3 klst.

Brottför/Mæting
Kl. 6 Gangan hefst við bílastæði skammt frá Kaldárseli
Fararstjórn

Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir.

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Morgunstund gefur gull í mund.

  • 6.maí. Þriðjudagur: Mosfell.
    Gangan hefst við bílastæðið við Mosfellskirkju í Mosfellsdal.

  • 7.maí. Miðvikudagur: Úlfarsfell.
    Gangan hefst við bílastæði Skógræktarinnar við Vesturlandsveg.

  • 8.maí. Fimmtudagur: Helgafell í Mosfellsbæ.
    Gangan hefst við bílastæði undir fjallinu, Mosfellsdalsmegin.

  • 9.maí. Föstudagur: Hafrahlíð
    Gangan hefst við gömlu réttina við Hafravatn.

 

Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis.