Suðvesturland
Mosfell
Morgungöngur
- Lýsing
Morgungönguvika FÍ dagana 5.-9. maí.
Á fjöll við fyrsta hanagal
Komdu sjálfum þér á óvart með göngu í morgunsárið og fylltu lungun af fjallalofti fyrir verkefni dagsins. Fjallaskáld Ferðafélags Íslands 2025 verður með í för og les úr verkum sínum.
Göngurnar taka 2-3 klst.- Brottför/Mæting
- Kl. 6 Gangan hefst við bílastæðið við Mosfellskirkju í Mosfellsdal.
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Morgunstund gefur gull í mund.
- 5.maí. Mánudagur: Helgafell ofan Hafnarfjarðar.
Gangan hefst við bílastæði skammt frá Kaldárseli - 7.maí. Miðvikudagur: Úlfarsfell.
Gangan hefst við bílastæði Skógræktarinnar við Vesturlandsveg. - 8.maí. Fimmtudagur: Helgafell í Mosfellsbæ.
Gangan hefst við bílastæði undir fjallinu, Mosfellsdalsmegin. -
9.maí. Föstudagur: Hafrahlíð
Gangan hefst við gömlu réttina við Hafravatn.
Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis.