Ferð: Reykjarfjörður – Þaralátursfjörður - Geirólfsgnúpur

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Strandir

Reykjarfjörður – Þaralátursfjörður - Geirólfsgnúpur

Söguganga í sumarblænum á Ströndum
Lýsing

Viltu uppgötva undur Stranda sem á sér vart hliðstæðu? Viltu heyra spennandi sögur af svæðinu og nasasjón af menningu og löngu horfnu mannlífi? Viltu njóta fuglalífs og fegurðar í óspilltri náttúru? Þetta er allt hægt í bækistöðvarferð þar sem siglt er í hinn dásamlega Reykjarfjörð á Ströndum og gist í þrjár nætur í svefnpokum í góðu og upphituðu húsi. Gengið er um í góðum félagsskap um ævintýraveröld með léttar byrðar á daginn og látið líða úr sér í heitri laug og potti á kvöldin. Ferðin hentar einkar vel þeim sem vilja léttari göngur í einstaklega fallegri náttúru þar sem skiptast á víðerni og yfirgefnar byggðir. Sameiginlegur matur er ekki innifalinn í verði.

Brottför/Mæting
Fyrir kl. 18 á einkabílum að Valgeirsstöðum í Norðurfirði.  
Fararstjórn

Jón Örn Guðbjartsson

Innifalið
Sigling, gisting, söguganga og fararstjórn. 

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Fróðleikur

Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.

Leiðarlýsing

1.d., miðvikud. Þátttakendur koma að Valgeirsstöðum þar sem gist er fyrstu nóttina. Um kvöldið er hægt að þræða fjöruna eða jafnvel ganga á Reykjaneshyrnu. 

2.d. Að morgni dags er siglt frá Norðurfirði í Reykjarfjörð. Eftir að hópurinn hefur komið sér fyrir í Gamla bænum er farið í létta sögugöngu um svæðið undir leiðsögn heimafólks og fjaran svo gengin að Reykjafjarðarósnum og til baka. Ganga: 8 km. Heildarhækkun: 35 m.

3.d. Gengið á Hánes (280 m) en af því er gríðarlegt útsýni suður og norður Strandir, niður í Þaralátursfjörð, Furðfjörð og til Kálfatinda. Af nesinu er gengið niður í hinn ægifagra Þaralátursfjörð. Haldið er á Hvítsanda og gatan þrædd til baka yfir í Reykjarfjörð. Ganga: 10,5 km. Heildarhækkun: 375 m. 

4.d. Ef skyggni og vatnsstaða í Reykjarfjarðarósnum leyfir er gengið á hinn magnaða Geirólfsgnúp (433 m). Af honum er ólýsanlega fagurt útsýni til allra átta. Ef ekki er fært á gnúpinn er haldið inn með Reykjafjarðarósnum í átt að Drangajökli og til baka. Ganga á Geirólfsgnúp: 14,5 km. Heildarhækkun: 520 m.

5.d. Frágangur í húsi og létt morgunganga í fjörunni ef tími vinnst til áður en siglt er til baka í Norðurfjörð.

Vinsamlegast athugið að í þessari ferð getur gangan á Geirólfsgnúp færst til milli daga með hliðsjón af veðri, skyggni og vatnshæð í jökulánni.

Fleiri ferðir á Strandir sumarið 2025