Ferð: Sandgerði- Hvalsneskirkja

Suðvesturland

Sandgerði- Hvalsneskirkja

Prjónaganga
Lýsing

Við ætlum að ganga frá Sandgerði meðfram ströndinni áleiðis að Hvalsneskirkja. Hvalsneskirkja var vígð 1887 og er kirkja Sandgerðinga. Eitt mesta sálmaskáld íslendinga Hallgrímur Pétursson þjónaði á Hvalsnesi fyrstu prestskaparár sín á árunum 1644 - 1651. Gengið er eftir sandbornum jarðvegi, á einstaka stað þarf að klöngrast smá yfir steina og síðan er gengið í fjörunni við sjávarkantinn.

Í lok göngunnar setjumst við niður á kaffihúsinu Golu, tökum upp prjónana og fræðumst meira um staðinn. Þetta er A-B ganga og er boðið upp á skutl frá Kaffihúsinu Golu að upphafsstað göngunnar. Ganga 6,5km og hækkun 100m.

Ókeypis er í göngurnar og allir velkomnir en
nauðsynlegt er að skrá sig

Skráning í göngu

Brottför/Mæting
Kl: 9:30 frá bílastæðinu við fótboltavöllinn í Sandgerði
Fararstjórn

 Ingibjörg Jónsdóttir og Hildur Björk Guðmundsdóttir

Innifalið
Fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Um prjónagöngur

Langar þig að koma út að ganga með prjónana í bakpokanum?
Þá eru þetta göngur fyrir þig.
Við ætlum að fara eina létta prjónagöngu í mánuði á höfuðborgasvæðinu og í nágrenni þess fram í apríl.

Hvetjum alla sem hafa þetta áhugamál til að koma og taka þátt og einnig þá sem hafa áhuga að læra að prjóna.

Fleiri prjónagöngur 2025

Gott að vita

Fyrstu mánuðina leggjum við áherslu á að geta sest inn á kaffihús í lok göngunnar með prjónana. Að sjálfsögðu ætlum við ef veður leyfir að setjast niður í göngunum og prjóna en eigum þá alltaf kaffihúsið í bakhöndinni ef aðstæður bjóða ekki upp á að prjóna úti.
Kaffihús mánaðarins: Kaffi Gola

Klæðum okkur eftir veðri, góða gönguskó, keðjubrodda, höfuðljós og að sjálfsögðu eru prjónarnir teknir með. Gott er að hafa heitt á brúsa og smá nasl með í bakpokanum.

Upphafsstaður göngunnar, sjá hér